Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
21. maí 2003

10. bekkur í River-Rafting

Vorferð 10. bekkjar að þessu sinni var norður í land að Bakkaflöt í Skagafirði, nánar tiltekið í River-Rafting eða flúðasiglingu.
Hér fyrir neðan má lesa ferðasögu þeirra ásamt því að sjá nokkrar myndir úr ferðinni.

 

Við lögðum af stað frá Íþróttamiðstöðinni mánudaginn 12. maí kl. 13. Um morguninn höfðu krakkarnir farið í síðasta samræmda prófið sem var stærðfræði. Það var ekkert sjoppustand á leiðinni því við voru svo spennt að komast í siglinguna. Við borðuðum nestið okkar í rútunni og vorum komin norður kl. 16,30 veðurútlit var með ágætasta móti. Við voum drifin í blautgallana og björgunarvestin, (sumir litu út eins og reyrðar rúllupylsur), síðan upp í rútus, kerra með 5 bátum hékk aftur í . Það voru 5 leiðbeinendur . Við skiptum okkur þannig að það voru 3 bátar með 6 manna áhöfn og 2 bátar með 7 manna áhöfn. Það var um 30 mín. keyrsla niður að ánni, þar var okkur sagt hvernig við ættum að haga okkur og þess háttar og þá var bara að leggja í hann. Við þurftum að halda á bátunum niður smá brekku og fara yfir smá grjótströnd og þetta voru nú ekki þægilegustu skórnir til að labba í í urðinni. Úps, kvíðahnúturinn í maganum var alveg að fara með mig, en hvarf alveg þegar siglingin hófst, þetta var alveg meiri háttar og hvílík upplifun. Skipanirnar á ýmsa vegu: hægri fram, vinstri aftur, allir fram, hægri aftur , allir aftur, allir fram, allir aftur í bátinn svo honum myndi ekki hvolfa, það var lent út fyrir borðstokkinn viðkomandi dýft ofan í og dreginn um borð, maður fékk gusurnar yfir sig frá hinum bátunum og það var svarað í sama. Það var stoppað í smá lægi og bátarnir festir saman og allir áttu að stökkva fram af kletti, maður gat komið sér undan því, það þurfti einhver að taka á móti og hífa upp í bátana, þau fífldjörfustu fór fleiri en eina ferð. Svo var komið að þar sem eystri og vestri áin mættust, við vorum í þeirri vestari. Hin er straumþyngri og sjálfsagt mörg af okkur sem hefðu viljað fara frekar í hana og fá meira kikk út úr þessu. En þarna var stoppað og fengum við aðeins að spreyta okkur á jafnvæginu og hversu vel við treystum hvort öðru . Það var staðið upp á kantinum á bátnum og myndaður hringur og alls ekki að sleppa því þá var voðinn vís og svo máttum við hlaupa eftir kantinum og það fór á ýmsa vegu. Svo var siglingunni haldið áfram niður ána og komið að þar sem rútan beið okkar, við þurftum náttúrulega að vippa bátunum upp úr ánni og aðeins eftir urðinni og upp á kerru með þá. Ég hugsaði þarna á staðnum hvað leið ætli rútan hafi komið, ég sá engan veg og fannst við vera bara innilokuð í gili. Nú, fyrst rútan var komin þarna þá væri einhver leið út úr þessu og við upp í rútuna, sem mjakaði sér hægt og rólega á stað yfir urðina og viti menn blasir ekki við manni þessi mjói malarvegur upp hlíðina og ef eitthvað var hrikalegt við þessa ferð þá var það þessi leið þarna upp, en við höfðum það. Það var sko sælusvipur á öllum þegar við komum á Bakkaflötina. Við drifum ökkur úr göllunum og gengum frá þeim eins og okkur var sagt og síðan skelltum við okkur í heitu pottana og sundlaugina sem var eins og frímerki á við okkar laug hér heima. Maturinn var tilbúinn rétt fyrir kl. 21, það gæddu sér allir vel á matnum því öll vorum við orðin glorhungruð. Við fengum grillað lambalæri með öllu sko, sultu, rauðkáli, grænum baunum, soðnum-brúnuðum- og frönskum kartöflum, hrásalati og auðvita brúnni sósu og gerðum við þessu góð skil. Við þökkuðum síðan fyrir okkur og drifum okkur niður í Varmahlíð í Kaupfélagið svo krakkarnir gætu sagt að þau hefðu aðeins farið í sjoppu til að kaupa bland í poka. Um kl. 1,30 voru það alsælir 10. bekkingar, Andrés kennari og pabbarnir Heimir, Hörður myndatökumaður, Kristján, Ólafur og mamman Guffý sem gengu út úr rútunni og vorum sko alveg til í að endurtaka þessa ferð. Að lokum 10. bekkingar ég er mjög stolt af ykkur, umgengnin var til fyrirmyndar, þið voruð mjög kurteis og ég er virkilega þakklát fyrir að hafa fengið að koma með. Við þökkum bílstjóranum honum Gumma á Helgafelli innilega fyrir samferðinna.
Bestu kveðjur, Guðfinna D. Arnórsdóttir.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré