Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
22. apríl 2009

Ársreikningur Stykkishólmsbæjar 2008

Í dag 22. apríl 2009 var ársreikningur Stykkishólmbæjar 2008 tekinn til fyrri umræðu. Eins og sveitarstjórnarlög kveða á um, skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn. Seinni umræða verður 20. maí n.k.

 

Í reglugerð nr. 944/2000, um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga, sem tók gildi 1. janúar 2001, eru ákvæði um reikningsskil sveitarfélaga. Þar er gert ráð fyrir að sveitarfélög hagi bókhaldi sínu og reikningsskilum í samræmi við ákvæði laga um bókhald nr. 145/1994 og ársreikninga nr. 144/1994 að svo miklu leyti sem sveitarstjórnarlög mæla ekki fyrir á annan veg eða reglugerðir settar á grundvelli þeirra.  Ársreikningar sveitarfélaga skulu byggðir á almennum reikningsskilaaðferðum.

 

Ársreikningur Stykkishólmsbæjar fyrir árið 2008 byggir á sömu reikningsskilaaðferðum og árið áður í samræmi við framangreind lög og reglur.

 

Ársreikningur 2008 - a-hluti (bæjarsjóður)

Ársreikningur 2008 - b-hluti (undirstofnanir bæjarsjóðs)

Helstu lykiltölur

 

 

 

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré