Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
23. maí 2003

Atvinnumálþing 24. maí

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Atvinnumálanefnd í samvinnu við Atvinnuráðgjöf Vesturlands mun standa fyrir málþingi um atvinnumál nk. laugardag í Grunnskólanum við Borgarbraut. Þingið er opið ÖLLUM bæjarbúum og byggir á því að hver íbúi hafi tækifæri á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.

 

 

 

 

 

Atvinnumálanefnd telur mikilvægt að kalla eftir hugmyndum bæjarbúa sem gætu verið liður í að efla atvinnulíf Stykkishólms.  Ein af forsendum þess að í bænum megi vera blómlegt og fjölbreytt atvinnulíf er að stefna verði mótuð í atvinnumálum og er þetta málþing liður í þeirri stefnumótun.  Viðfangsefnin verða fjögur og unnin í jafnmörgum vinnuhópum.  Þau eru:
 
  • Iðnaður
  • Opinber þjónusta
  • Sjávarútvegur og vinnsla
  • Ferðaþjónusta og verslun
 
Hópstjórar sem nú þegar hafa verið skipaðir, munu stýra umræðum í hópunum þannig að vinnan verði markvissari.  Atvinnuráðgjöf Vesturlands hefur aðstoðað atvinnumálanefnd við undirbúning málþingsins.
 
Það er von atvinnumálanefndar að sem flestir bæjarbúar sjái sér fært að mæta þessa morgunstund.  Þátttakendum er ekki skylt að sitja allt þingið heldur er markmiðið að fólk taki þátt vegna þess að það hafi áhuga og metnað fyrir framtíð Stykkishólms.
 
Dagskrá:
 
Kl.   10:00    Setning.  Óli Jón Gunnarsson, bæjarstjóri.
Kl. 10.05  Markmið kynnt, dagskrá og vinnulag.  Atvinnuráðgjöf Vesturlands
Kl. 10.15  Erindi um atvinnumál.  Dr. Örn D. Jónsson, prófessor í frumkvöðlafræðum við HÍ.
Kl.  10.55    Hópvinna hefst.
Kl.  13.00    Niðurstöður dregnar saman - Þingslit.
 
Kæri Hólmari!
 
Mundu að skoðun þín skiptir máli!
 
Atvinnumálanefnd Stykkishólms
 

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré