27. apríl 2009
Íslenska gámafélagið hlaut Kuðunginn 2009
Síðastliðinn föstudag á „degi umhverfisins“ stóð umhverfisráðuneytið fyrir málþingi um græn störf í Iðnó en auk þess var úthlutað umhverfisverðlaunum umhverfisráðuneytisins „Kuðungnum“. Að þessu sinni hlaut sorphirðufyrirtækið Íslenska gámafélagið ehf. Kuðunginn. Viðurkenninguna fær fyrirtækið m.a. fyrir innleiðingu „Stykkishólmsleiðarinnar“, sem er framsækin og metnaðarfull endurvinnsluaðferð sem Stykkishólmsbúar hafa tileinkað sér mjög vel. Stykkishólmsbær óskar Íslenska gámafélaginu ehf. til hamingju með viðurkenninguna með þökk fyrir gott samstarf.
Áður hafa 14 fyrirtæki hlotið Kuðunginn en umhverfisráðuneytið veitti Kuðunginn fyrst árið 1994.
Íslenska gámafélagið hefur verið leiðandi afl á ýmsum sviðum sem tengjast umhverfinu og endurvinnslu á undanförnum árum og þá sérstaklega í að koma á flokkun í sveitarfélögum og færa á hærra þjónustustig. Á síðasta ári innleiddi fyrirtækið endurvinnslukerfi í Stykkishólmi sem nú gengur undir nafninu „Stykkishólmsleiðin“. Græn og brún tunna eru við hvert hús í bænum auk hinnar venjulegu gráu tunnu fyrir óflokkað sorp. Sama kerfi var einnig tekið upp í Flóanum, fyrst dreifbýlissvæða og nú síðast innleiddi Arnarneshrepppur græna tunnu sem staðalbúnað fyrir hvert hús.
Græna tunnan tekur við endurvinnanlegu sorpi s.s. plasti, dósum, dagblöðum og tímaritum og rafhlöðum en brúna tunnan við lífrænu heimilissorpi sem nýtt er til moltugerðar. Íslenska gámafélagið sér um söfnun og útflutning á því flokkaða efni sem þarf að vinna erlendis en kemur öðru í réttan farveg hér á landi. Þjónusta Íslenska Gámafélagsins við sveitarfélögin hafa mælst mjög vel fyrir og er orðin fyrirmynd fyrir önnur sveitarfélög í því hvernig flokkun og endurvinnsla getur sparað beinharða peninga en urðun er dýr og óumhverfsisvæn leið til að láta sorp hverfa sjónum fólks. Með því að flokka og endurvinna frekar en urða sparar sveitarfélagið um 70% kostnaðar og flokkaða efnið fær endurnýjaða lífdaga í nýjum framleiðsluvörum sem sparar auðlindir, eða sem orka t.d. við bruna eða við metanframleiðslu.
Íslenska Gámafélagið hefur ennfremur lagt metnað sinn í að umbreyta bílaflota sínum í metanbifreiðir og keyrir nú allur bílafloti Íslenska Gámafélagsins á metaneldsneyti.
Með haustinu mun Íslenska Gámafélagið væntanlega fá vottun ISO 14001 umhverfisvottunarkerfisins en fyrirtækið hefur markvisst unnið að því að innleiða umhverfisstjórnun í allan sinn rekstur. Í dag hafa níu íslensk fyrirtæki ISO 14001 vottun.
Myndin sýnir Jón Þóri Frantzson framkvæmdastjóra Íslenska Gámafélagsins ehf. og Kolbrúnu Halldórsdóttur umhverfisráðherra með Kuðunginn á Tjarnarbakkanum fyrir utan Iðnó, sl. föstudag. Ljósmynd: Einar Bergmundur.
Frétt tekin af www.natturan.is