Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
4. apríl 2001

Heilsuefling Stykkishólms

Heilsuefling Stykkishólms ehf. var formlega stofnuð föstudaginn, 30. mars sl.
Markmið félagsins er að vinna frekar að því að útfæra hugmyndir um heilsubæinn Stykkishólm, vinna að viðskiptaáætlunum og ná til fjárfesta til þess að afla hugmyndunum brautargengis. Ætla má að slíkt geti gengið eftir.
Eigendur félagsins eru annars vegar 3P-Fjárhús sem á 60% og hins vegar Stykkishólmsbær sem á 40%. Stjórnina skipa: Páll Kr. Pálsson, formaður og Magnea Þ. Hjálmarsdóttir, bæði frá 3P-Fjárhús og Bergþór Ólason frá Stykkishólmsbæ. Framkvæmdastjóri félagsins er Ásthildur Sturludóttir og er skrifstofa félagsins í Ráðhúsinu í Stykkishólmi.

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré