Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
18. maí 2009

Umhverfisvikan á enda

Umhverfisnefnd Stykkishólmsbæjar stóð fyrir og skipulagði vorhreinsunarátak í Stykkishólmi 11. - 16. maí. Með átakinu var allt bæjarfélagið hreinsað í einu samfelldu heildrænu átaki. Margir tóku þátt í átakinu en svo dæmi séu tekin þá hreinsuðu leik- og grunnskólanemar til á opnum svæðum í bæjarfélaginu og félagar í Lions sáu um hreinsum meðfram þjóðveginum. Á laugardaginn var svo uppskeruhátíð umhverfisvikunnar. Kveikt var

upp í grillum á skógræktarsvæðinu í Grensás í blíðskaparveðri og uppskorinn árangur átaksins. Það var bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar sem sá um að grilla ofan í liðið. Farið var í ratleik og fengu allir verðlaun. Einnig var frítt í sund þennan dag.

 

 

 

 

 

 

 

 

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré