EARTH CHECK
BLÁFÁNINN
GRÆNFÁNINN
ENGLISH
Flýtileiðir...
Forsíða
Fundargerðir
Gjaldskrár
Sorphirðudagatal
Eyðublöð
Grunnskólinn
Leikskólinn
Tónlistarskólinn
Leiðin þín:
Forsíða
-
Mannlíf
-
Tíðindi
-
Bæjarfréttir
Þjónustan
Stjórnsýslan
Mannlíf
Bærinn og sagan
Tjaldsvæði og gisting
Sundlaug
Söfn
Þjónustuaðilar&Fyrirtæki
Félagsstarf
Tíðindi
Bæjarfréttir
Svipmyndir
Atburðir
Vefmyndavél
Norðurljósin
Danskir dagar 2012
Áskrift að fréttum
Nafn:
Netfang:
Rss áskrift
3. júní 2003
Myndrænar stemmningar
Norska húsið hefur sumarstarfsemina 2003 þann 6. júní og opnar nýja sýningarsali á jarðhæð með samsýningunni: Myndrænar stemmningar - Norska húsið og nágrenni.
Á sýningunni eru hátt í 40 verk, ný og eldri; olíumyndir, vatnslitamyndir, teikningar, glerverk og vefnaður eftir á annan tug listamanna sem búa eða hafa búið í Stykkishólmi. Undirbúningur og uppsetning sýningarinnar var í höndum Jóns Svans Péturssonar, Steinþórs Sigurðssonar og Aldísar Sigurðardóttur.
Á jarðhæð er einnig Krambúð hússins þar sem hægt er að fá vandað handverk, listmuni, minjagripi, póstkort, bækur og fleiri forvitnilegar og spennandi vörur.
Á annarri hæð er sýningin "Heldra heimili í þéttbýli á 19. öld". Við uppsetninguna var stuðst við þær heimilidir sem til eru um innbú og heimilishætti Árna og Önnu Thorlacius er létu reisa húsið 1932.
Í risi er opin safngeymsla þar sem safngestir glöggva sig á hinum miklu viðum sem húsið er byggt úr og upplifa stemmningu liðins tíma á annan hátt en á neðri hæðunum.
Norska húsið er um 500 fm. og var um áratuga skeið eitt af þremur stærstu húsum landsins og fyrsta tvílyfta íbúðarhús landsins. Viðirnir voru fluttir tilsniðnir til Stykkishólms frá Arendal í Noregi. Eftir lát Árna gekk húsið úr eigu ættarinnar og þjónaði ýmsum hlutverkum uns það varð byggðasafn sýslunnar. Norska húsið er elsta hús í Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu og alfriðað.
Í fyrra var skipt um þak á húsinu og sett á það timburþak af upprunalegri gerð og suðurhlið endurnýjuð. Þá var tekin inn hitaveita í húsið og í ár hefur jarðhæð hússins verið færð til upprunalegs horfs, tekinn hefur verið í notkun nýr sýningarsalur og Krambúð safnsins hefur verið færð í stærra og betra rými. Áætlað er að framkvæmdum við að koma húsinu í upprunalegt horf muni ljúka á næsta ári.
Byggðasafn Snæfellinga er rekið af Héraðsnefnd Snæfellinga. Formaður hennar er Sigríður Finsen, formaður safnanefndar Héraðsnefndar er Gunnar Kristjánsson og Aldís Sigurðardóttir er forstöðumaður safnsins.
Norska húsið er opið daglega frá júní fram í september frá kl. 11:00 til 17:00.
Flýtileiðir...
Forsíða
Fundargerðir
Gjaldskrár
Sorphirðudagatal
Eyðublöð
Grunnskólinn
Leikskólinn
Tónlistarskólinn
Eldri fréttir
2012
JAN
FEB
MAR
APR
MAÍ
JÚN
JÚL
ÁGÚ
SEP
OKT
NÓV
DES
2011
2010
2009
2008
2007
2006
2005
2004
2003
2002
2001
Á næstunni
Í dag
Blóðsöfnun í Stykkishólmi
Í dag
Útskrift elstu nemenda Leikskólans
25. maí 2012
Afmælishátíð
30. maí 2012
Grænn dagur
Fundargerðir
15.5.2012
485. fundur bæjarráðs
14.5.2012
281. fundur bæjarstjórnar
14.5.2012
149. fundur skipulags- og bygginganefndar
30.4.2012
7. fundur Nefndar um málefni fatlaðra
26.4.2012
280. fundur bæjarstjórnar
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is -
Starfsmenn
-
Veftré