3. júní 2003
Ársreikningur Stykkishólmsbæjar 2002
Ársreikningur Stykkishólmsbæjar og undirfyrirtækja hans var samþykktur samhljóða við síðari umræðu í bæjarstjórn 28. maí sl. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn við tvær umræður í sveitarstjórn.
Umtalsverðar breytingar eru á framsetningu ársreikningsins frá fyrri árum þar sem hann er settur fram samkvæmt nýjum reikningsskilum sveitarfélaga. Starfseminni er skipt í tvo hluta, A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum en til B-hluta teljast fyrirtæki sem að meginhluta eða öllu leyti eru í eigu sveitarfélaga og eru rekin með sjálfstæðan fjárhag.
Hætt er að gjaldfæra fjárfestingu en þess í stað eru slíkar fjárfestingar færðar beint á rekstur.
Rekstur Stykkishólmsbæjar var nokkuð erfiðari en undanfarin ár og má einkum rekja það til aukins launakostnaðar.
Helstu niðurstöður ársreikningsins eru:
| Skatttekjur og framlög |
330.800 |
| Tekjur málaflokka og rekstrartekjur |
327.276 |
| Rekstrartekjur samtals |
658.076 |
|
|
| Laun og launatengd gjöld |
262.168 |
| Annar kostnaður |
293.866 |
| Afskriftir |
43.768 |
| Rekstrargjöld samtala |
599.802 |
| Fjármagnskostnaður |
- 64.871 |
|
|
| Rekstrarniðurstaða |
- 6.595 |
| Veltufé frá rekstri |
114.258 |
| Fjárfestingar |
56.755 |
Efnahagsreikningur
Helstu niðurstöður samstæðu efnahagsreiknings 31.12.2002 eru:
(í þús kr.).
| Fastafjármunir |
1.926.181 |
| Veltufjármunir |
191.208 |
| Áhættufjármunir og langtímakröfur |
166.531 |
| Eignir samtals |
2.283.920 |
|
|
| Skammtímaskuldir |
209.434 |
| Langtímaskuldir |
885.177 |
| Lífeyrisskuldbindingar |
95.000 |
| Eigið fé |
1.094.309 |
| Egið fé og skuldir |
2.283.920 |
Nánari upplýsingar veitir Óli Jón Gunnarsson, bæjarstjóri í síma 438-1700.