29. júní 2009
Þjóðbúningadagurinn í Norska húsinu

Búningadagurinn verður haldinn laugardaginn 4. júlí n.k. kl. 14.00-16.00.
Nú er tækifærið til að klæðast þjóðbúningunum sínum og sýna sig og sjá aðra. Fólki á íslenskum búningi verður boðið í kaffiboð í betri stofunum hjá frú Önnu Thorlcaius í Norska húsinu. Og við hvetjum einnig þá sem eru að vinna að búningi til að taka handavinnuna með sér.
Vegna mikillar þátttöku undanfarin ár biðjum við fólk að skrá þátttöku fyrirfram í síma 438 1640 eða netfang: norskhus@simnet.is
Vonumst til að sjá sem flesta
Starfsfólk Norska hússins