Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
19. janúar 2001

Fjárhagsáætlun 2001 – Fréttatilkynning.

Á bæjarstjórnarfundi 15. janúar 2001 var fjárhagsáætlun Stykkishólmsbæjar og undirfyrirtækja afgreidd með 7 samhljóða atkvæðum.
Skatttekjur bæjarsjóðs eru 270 m.kr. Fjárfestingar eru áætlaðar fyrir 46 m.kr. og lækkaðar skuldir um 18 m.kr. Rekstrargjöld eru því tæplega 80% af skatttekjum og 85% með fjármagnskostnaði. Rekstrargjöld eru 214 m.kr. eftir að 85 m.kr. tekjur málaflokka hafa verið dreginar frá.

Í þessari fjárhagsáætlun er stigið fyrsta skrefið til lækkunar skulda eftir þá miklu uppbyggingu sem verið hefur á síðustu árum við hitaveitu- og sundlaugar-framkvæmdir. Þessi niðurstaða er nokkru betri en áætlað var við afgreiðslu 3ja ára áætlunar 2001-2003 sem afgreidd var í fyrra.
Aukin uppbygging þjónustumannvirkja kallar einnig á aukinn rekstrarkostnað þannig að það er ánægjulegt að geta haldið rekstrarútgjöldum undir 80%.

Langstærsti útgjaldaliðurinn er fræðslumál 106 m.kr. eða tæplega 50% af öllum útgjöldum bæjarfélagsins. Á eftir koma félagsþjónustan með 27 m.kr. og æskulýðs- og íþróttamál með 26 m.kr.

Helstu fjárfestingar eru til gatna- og holræsa auk fjármuna til fræðslu- og menningar-mála. Einnig er gert ráð fyrir að undirbúningsframkvæmdir vegna Unglingalandsmóts U.M.F.Í. í Stykkishólmi 2002 verði að nokkru leiti unnið á þessu ári, eða fyrir um 5. m.kr.

Aðrar umtalsverðar framkvæmdir sem verða í gangi á þessu ári á vegum stofnana eða fyrirtækja bæjarfélagsins eru:
a) Framkvæmdir við stækkun á matsal og endurnýjun tækjakosts í eldhúsi Dvalarheimilisins í Stykkishólmi.
b) Varaaflsstöð fyrir Hitaveitu Stykkishólms sem staðsett verður í varma-skiptistöðinni.

Tekjur undirfyrirtækja eru 128 m.kr., rekstrargjöld 75 m.kr. og heildarlækkun skulda 26 m.kr.



17.1.2001.

Óli Jón Gunnarsson,
bæjarstjóri.

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré