13. júní 2003
Bláfánanum flaggað við Stykkishólmshöfn.

Föstudaginn 13. júní 2003 afhenti Landvernd smábátahöfninni í Stykkishólmi Bláfánann við hátíðlega athöfn. Smábátahöfnin í Stykkishólmi er fyrsta höfnin til að hljóta þessa alþjóðlegu viðurkenningu hér á landi.
Smábátahöfnin sótti um að fá að flagga Bláfánanum í sumar. Bláfáninn er alþjóðlegt merki fyri hafnir sem uppfylla ströng skilyrði í umhverfis- og öryggismálum.
Það eru alþjóðasamtökin Foundation for Enviromental Education, sem Landvernd á aðild að, sem standa að baki þessu merki. Íslensk dómnefnd fór yfir umsóknirnar frá viðkomandi hafnarstjórnum og í apríl voru þær lagðar fyrir evrópska dómnefnd sem samþykkti Bláfánann til Stykkishólms.
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, formaður Landverndar flutti ávarp og afhenti hafnarstjórn fánann. Síðan flutti Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, ávarp og þakkaði Landvernd fyrir að sjá um Bláfánann á Íslandi og stuðla þannig að bættri umgengni og meira öryggi í höfnum landsins.