Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
23. júlí 2009

Norska húsið

N.k. laugardag, 25. júlí n.k. kl. 14.00 verða opnaðar nýjar sýningar í Norska húsinu.

 

„...nema fuglinn fljúgandi“

 

Í Mjólkurstofunni sýnir Ingibjörg Helga Ágústsdóttir útskurð á þjóðlegum nótum.  Ingibjörg  er fædd og uppalin í Stykkishólmi. Hún lærði fatahönnun í London og Kaupmannahöfn en starfar í Stykkishólmi í dag.

                                                     

 

 

 

 

 

   

 

 

 

Ingibjörg hefur tekið þátt í mörgum handverkssýningum en þetta er fyrsta einkasýning hennar, og nefnir hún sýninguna “…nema fuglinn fljúgandi”

Innblástur fyrir þessi verk sem eru unnin í tré er sóttur í þjóðsögur og ævintýri eins og heitið gefur til

 

kynna. Sögur sem eru henni minnistæðar úr æsku sem sögur fyrir svefninn eða jafnvel þjóðsögur úr nágrenninu, en Stykkishólmur og náttúran í kringum hann hafa einnig haft mikil áhrif á gerð verkanna.

 

 

Kreppur og góðæri – gleði og sorgir í Norska húsinu

 

Í Eldhúsin er Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla með kynningu á verkefni sem verið hefur í gangi um nokkurt skeið, um söfnun sagna, saga og mynda sem tengjast Norska húsinu á 20. öld.

 

Þessi sýning í Eldhúsinu er lítil kynning á þessu verkefni sem unnið verður næstu árin. Þær myndir, minningar og sögur sem birtar eru, eru á engan hátt tæmandi upplýsingar, hvorki frá viðmælendunum né frá sögulegu sjónarhorni. Heldur er leitast við að þeir sem skoða sýninguna fái hugmynd um Norska húsið og því lífi sem í því var lifað á 20. öldinni.  Við vonumst einnig til að sýningin muni skila safninu fleiri viðmælendum þannig að fsmá saman fáist fyllri mynd af sögu Norska hússins.

                    

Sýningarnar standa fram í miðjan september.

  

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré