3. júlí 2003
Sýningar á jarðhæð Norska hússins
Laugardaginn 5. júlí nk. kl. 14.00 opna tvær sýningar á jarðhæð Norska hússins. Ebba Júlíana Lárusdóttir sýnir glerlistaverk í bláa salnum og Listagalleríið Samlagið, sem samanstendur af 15 listamönnum sem allir tengjast galleríinu Samlaginu á Akureyri, sýnir í gyllta salnum.
Ebba Júlíana Lárusdóttir sýnir glerlistaverk í blá sal Norska hússins. Ebba Júlíana er fædd og uppalin í Stykkishólmi, hún er dóttir hjónanna Ástu Pálsdóttur og Lárusar Elíassonar, hafnarvarðar. Ebba hefur lagt stund á glerlist síðan 1988, en hún lærði glerbræðslu hjá Chris Ellis og glerblástur í Portland Press Studio í Texas.
Ebba hefur haldið fjölda einka- og samsýninga hér heima og erlendis, m.a. hefur hún áður haldið sýningar í Norska húsinu og munir hennar hafa verið til sölu í krambúð Norska hússins. Sýningin samanstendur að mestu af veggmyndum og skálum sem sýna vel þær nýju brautir sem Ebba Júlíana fetar nú í listsköpun sinni.
Í gyllta salnum sýna 15 listamenn sem allir tengjast galleríinu Samlaginu á Akureyri. Samlagið rekur listmunaverslun í gilinu á Akureyri þar sem myndlistarmenn af Norðurlandi hafa til sýnis og sölu verk sín, sem eru m.a. vefnaður, leir, málverk, grafík, teikningar og mósaík. Á þessari sýningu verða sett upp smærri myndverk eftir félagsmenn en samsvarandi sýningar félagsmanna úr Samlaginu eru í sumar settar upp m.a. á Akureyri, í Reykjavík, á Egilsstöðum og Blönduósi.
Í Krambúðinni eru forvitnilegar og spennandi vörur til sölu og í sýningaraðstöðunni í Brokeyjarstofu verður sett upp athyglisverð sýning úr fórum safnsins. Heldra heimili á 19. öld er á annarri hæð hússins og samkvæmt áreiðanlegum heimildum er talsvert af draugum sem leika lausum hala uppi í risinu.
Sýningarnar á jarðhæðinni standa til 28. júlí en húsið er opið daglega í sumar frá kl. 11-17.
Verið velkomin í Norska húsið.