Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
4. júlí 2003

17. júní

Skrúðganga á 17. júní 2003

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hátiðarhöld á þjóðhátíðardegi íslendinga voru með hefðbundnu sniði í ár og fóru þau fram í blíðskaparveðri.

 

 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Hófst dagskráin með skrúðgöngu upp Aðalgötu þar sem gamlir félagar Lúðrasveitar Stykkishólms leiddu gönguna.  Helgistund var í Hólmgarði, ásamt ræðu dagsins sem flutt var af Sesselju Pálsdóttur, ávarpi fjallkonu og að því loknu var skemmtidagskrá þar sem fram komu Pétur Pókus og Bjarni töframaður.
Kvenfélagið Hringurinn var með kaffisölu í félagsheimilinu og var góð aðsókn í það samkvæmt venju.  Við það tækifæri voru teknar myndir af fjallkonunni með þeim konum sem þarna voru á íslenskum búning.  Þá leyfðu hestamenn börnum að fara á hestbak og Kayakleigan Sagan bauð fólki að prófa að fara á kayak í Vogsbotni.  Dagskránni lauk svo með dansleik fyrir yngri kynslóðina í félagsmiðstöðinni X-inu.

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré