Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
5. ágúst 2003

Nýjar sýningar í Norska húsinu.

 
 
 
 
 
 
 
 
 
Fimmtudaginn 7. ágúst nk. kl. 17:00 opna tvær sýningar í Norska húsinu í Stykkishólmi.
 

Í Mjólkurstofunni (Gyllta salnum) opnar sýning þriggja listakvenna sem þekktar eru fyrir verk sín unnin í leir, þeirra Koggu, Kristínar Garðarsdóttur og Guðnýjar Magnúsdóttur.  Listakonurnar nálgast verk sín með töluvert ólíkum hætti og þó hver þeirra hafi mótað með sér sterkan persónulegan stíl leitast þær við að ná fram spennandi samhljóm með samstillingu verka sinna.  Sýningin hefur hlotið nafnið TRÍÓ  og er þetta þriðja sýning þeirra með svipuðu sniði.
 
Í Eldhúsinu (Bláa salnum) sýnir Ljósmyndasafn Stykkishólms myndir úr eigu safnsins.  Meginuppistaðan í safninu er ljósmyndasafn Jóhanns Rafnssonar, sem hann afhenti Stykkishólmsbæ 16. júní 1996.  Safninu barst síðar veglegur safnauki frá Árna Helgasyni, en Árni var fréttaritari Morgunblaðsins í Stykkishólmi um áratuga skeið.  Aðalefni sýningarinnar eru myndir úr þessum söfnum.  Einnig verður vefur Ljósmyndasafns Stykkishólms formlega opnaður og geta gestir skoðað ljósmyndir safnsins á netinu, í tölvu sem staðsett verður í sýningarsalnum.
 
Í Krambúðinni er alltaf eitthvað nýtt að sjá, forvitnilegt og spennandi.  Þá er koppasafn Bryndísar í sýningaraðstöðunni í Brokeyjarstofu.  Að sjálfsögðu er ennþá opið hús hjá Árna Thorlaciusi og fjölskyldu og húsdraugarnir í risinu hafa aldrei verið hressari.
 
Sýningarnar á jarðhæðinni standa til 7. september og húsið er opið daglega frá kl. 11 til 17.
 
Verið velkomin í Norska húsið.

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré