3. nóvember 2009
Málþing yfirfærsla málefna fatlaðra til sveitarfélaga 2011
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi standa fyrir málþingi um yfirfærslu málefna fatlaðra til sveitarfélaga 2011.
Málþingið verður haldið á Hótel Hamri þann 9. nóvember og hefst kl. 17.
Gestir fundarins verða þau Þór G. Þórarinsson, skrifstofustjóri í félagsmálaráðuneytinu og Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, forstöðumaður málefna fatlaðra á Norðurlandi vestra, og Gunnar Sandholt, félagsmálastjóri í Skagafirði, auk foreldri fatlaðs einstaklings sem heitir Guðný Ólafsdóttir.
Stjórnandi málþings: Páll Brynjarsson, formaður SSV og sveitarstjóri Borgarbyggðar.
Áætlað er að málþinginu ljúki kl. 19:15.
Málþingið er ætlað sveitarstjórnarfólki, fulltrúum í nefndum, starfsfólki sem vinnur við þjónustuna, notendum og aðstandendum þeirra og öllum þeim öðrum sem láta sig málið varða.