7. ágúst 2003
Undirbúningur fyrir íbúaþingið er hafinn.

„Hólmarar taka höndum saman" er yfirskrift eins árs verkefnis á vegum Stykkishólmsbæjar, sem miðar að því að samstilla krafta íbúa, félagasamtaka, fyrirtækja, skóla og bæjaryfirvalda til að snúa vörn í sókn á krefjandi tímamótum. Verkefnið hófst formlega með atvinnumálþingi sem haldið var þann 24. maí sl.
Næsti áfangi er svo íbúaþing sem haldið verður þann 1. nóvember n.k.

Þann 19. maí s.l. voru haldnir tveir undirbúningsfundir vegna íbúaþingsins, annars vegar með fulltrúum frá ráðum og nefndum bæjarins, ásamt starfsmönnum og hins vegar með fulltrúum frá félagasamtökum og fyrirtækjum. Miklar og líflegar umræður voru á báðum fundum.
Rætt var um mikilvægi þess að gera þau verkefni sem þegar eru í gangi í bænum, sýnilegri með bættu upplýsingastreymi og gjarnan að tengja þau yfirskriftinni „Hólmarar taka höndum saman". Einnig að koma af stað nýjum verkefnum sem mögulegt er að tengist þessu eins árs verkefni.
Hvað vilja bæjarbúar og hvernig? Hvað getur og vill hver og einn leggja af mörkum til að láta draumana rætast? Verkefnið snýst um að móta sameiginlega sýn, virkja viðhorfin og láta verkin tala.
Sú framtíðarsýn sem þátttakendur á fundinum áttu sér fyrir Stykkishólm, var að atvinnulífið í bænum muni standa á traustum fótum á ný og að öll svartsýni víki. Lögð verði áhersla á að byggja upp til framtíðar í stað þess að huga eingöngu að nútíðinni. Íbúum fjölgi og meðalaldur lækki.

Mannlíf verði laust við öfund og niðurrifstal og fólk meti að verðleikum þá kosti sem bærinn hefur upp á að bjóða. Stykkishólmur verði þekktur út á við sem vistvænn og fallegur bær og þar dafni fjölbreytt og gott atvinnu-, menningar- og fjölskyldulíf.
Samfélagið verði samheldið, opið og líflegt og jákvæðni og bjartsýni ráði ríkjum. Fólk sé tilbúið til að vinna bænum sínum vel og þegar á þarf að halda verði viðhorfið: „Ekkert mál, við reddum þessu". Með slíkri jákvæðni sé beinlínis hægt að hafa jákvæð áhrif á hagvöxtinn!

Fundarmenn voru sammála um mikilvægi þess að allir geti starfað saman af heilum hug að því að tryggja bjarta framtíð bæjarins. Þetta á jafnt við um það fólk sem er pólitískt kjörið til ábyrgðarstarfa fyrir bæjarfélagið, þá sem taka þátt í starfi félagasamtaka, þá sem stýra fyrirtækjum og hinn almenna íbúa, hvar í flokki sem fólk stendur.

Ljóst er að á íbúaþinginu munu koma fram margar hugmyndir um verkefni og aðgerðir sem miða að því að styrkja stöðu Stykkishólms. Unnið verður frekar úr þeim hugmyndum og í framhaldi af því verður til aðgerðaáætlun þar sem skilgreint verður hverjir bera ábyrgð á verkefnum, tímasetningar og áætlaður kostnaður.
Þess má geta að nemendur Grunnskólans munu vinna verkefni í tengslum við íbúaþingið og kynna afrakstur og niðurstöður þeirrar vinnu á þinginu. Formaður stýrihóps verkefnisins er Dagný Þórisdóttir, bæjarfulltrúi en umsjón þess er í höndum ráðgjafarfyrirtækisins Alta.
Með bestu kveðju,
Sigurborg Kr. Hannesdóttir