17. nóvember 2009
Opinn fundur um minkaveiðiátak
Opinn fundur um minkaveiðiátak verður á Ráðhúsloftinu þriðjudaginn 17. nóvember (í dag), kl. 13-15. Á fundinum verður farið yfir minkaveiðiátakið sem hefur staðið yfir á Snæfellsnesi og í Eyjafirði s.l. þrjú ár. Þar verður kynnt framvinda átaksins og hvernig það hefur gengið. Einnig verða umræður um átakið og hvað tekur við að því loknu. Allir velkomnir.