11. ágúst 2003
Danskir dagar

Hverfagrill!
Nú líður að Dönskum dögum og má segja að þeir hefjast þeir óformlega á föstudag með hverfagrillum út um allan bæ í Stykkishólmi.
Gerum við ráð fyrir að í öllum götum bæjarins verði grillað. Eiga allir að mæta með grill, stóla og borð og auðvitað eitthvað á grillið og síðast en ekki síst góða skapið. Einnig vonumst við til að göturnar verði skreyttar við þetta tækifæri, jólaljósin verði sett upp sem og blöðrur og allt það skraut sem ykkur dettur í hug. Hér er mottóið meira er meira og minna er minna!!! Dönsk stemning verður á kaffihúsum bæjarins og dansleikur á félagsheimilinu Skildi með Þúsöld.
Skrúðganga, Aksjón og Stjörnuleit!
Á laugardaginn verður hátíðin sett. Um morguninn verður ratleikur á vegum Lions frá Íþróttamiðstöð og svo hefjast herlegheitin með skrúðgöngu klukkan 13 frá Nýja skólanum með “gömlu lúðrasveitina” í broddi fylkingar og niður á hátíðarsvæðið sem verður eins og vanalega bak við Búnaðarbankann. Verður það Danski varasendiherrann, Ernst Torben Hemmingsen, sem setur hátíðina. Eftir það opnar markaðstjaldið og glæsileg dagskrá hefst sem samanstendur m.a af einsöng, söngleik 5. bekkjar, keppnina um sterkasta pabba í heimi, húllakeppni, Latabæ, Stjörnuleit í Stykkishólmi auk hins landsfræga Aksjóns Lionsmanna. Auk dagskrár við hátíðrarsvið verður fullt að gerast við Aðalgötuna svo sem kassabílarallí, kassaklifur, frygtlös (fear-factor) og veltibíll Sjóvá.
Heitt í kolunum!
Um klukkan 19 mun hitna í kolunum við hátíðarsvæðið. Þá mæta Hólmarar í sameiginlegt grill við Hátíðarsvæðið, vopnaðir pylsum og grilltöngum því nú skal grillað! Þarna verða afhent verðlaun fyrir Stjörnuleitina, best skreyttu götuna og fallegasta garðinn. Auk þess sem síðasta þrautin í “frygtlös” verður og síðast en ekki síst brekkusöngur og stemning eins og okkur er einum lagið og nú verða allir að muna eftir söngbókunum.
Klukkan 21 hefst bryggjuball með hljómsveitinni Von og hátíðinni verður slitið á miðnætti með flugeldasýningu. Áfram verður dönsk stemning á kaffihúsunum í bænum en Brimkló mun æra lýðinn á Hótel Stykkishólmi!
Öll veitingahús bæjarins verða með opin frameftir báða dagana og á sunnudagsmorguninn klukkan 11 verður dönsk/íslensk messa í gömlu kirkjunni og tónleikar með Álftagerðisbræðrum verða klukkan 14 í nýju kirkjunni.
Við biðjum alla að taka vel á móti merkjasölufólki. Merkin kosta 500 kr. en með þeim fylgir dagskrá daganna. Merkin gilda einnig sem happdrættismiðar og eru vegleg verðlaun í boði frá Icelandair.
Fjölskyldan saman á Dönskum dögum!
Venlig hilsen,
Dönsku daga nefnd 2003