Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
12. nóvember 2009

Fréttir af jólatrénu sem sett verður upp í Hólmgarði

Í ár, líkt og undanfarin ár, mun Stykkishólmur skarta jólatré frá vinabæ sínum Drammen í Noregi. Þær fréttir voru að berast af trénu að það var höggvið við Hvalsdammen, sem er norður af Drammen. Það er ca. 13 metra hátt og 45 ára.

Tréð mun leggja af stað frá Osló þriðjudaginn 17. nóvember og áætlað er að það verði komið til Reykjavíkur viku síðar eða þriðjudaginn 24. nóvember. Því má búast við að það verði komið hingað rétt fyrir mánaðamótin nóvember/desember.

Hér má sjá myndir frá atburðinum:

 

 

 

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré