5. desember 2002
Viðbygging og endurbætur
Laugardaginn 1. desember 2001 var viðbygging við Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi tekin formlega í notkun.
Matsalur hefur verið stækkaður og tæki í eldhúsi endurnýjuð ásamt fleiru. Heildarkostnaður var kr. 20 miljónir.
Við þetta tækifæri voru tveir starfsmenn sem létu af störfum á árinu kvaddir. Kristín Björnsdóttir forstöðukona sem hóf störf 1992 og María Guðmundsdóttir sem hóf störf 1978. Núverandi forstöðukona dvalarheimilisins er Jóhanna Guðbrandsdóttir.