20. ágúst 2003
Danskir dagar haldnir í tíunda sinn.

Danskir dagar voru haldnir í 10. sinn 15.-17. ágúst sl. og fóru þeir vel fram. Hátíðin hófst með hverfagrillum á föstudag og var ákveðin samkeppni í gangi um hvaða hverfi stæði sig best og var það Silfurgatan sem varð hlutskörpust að þessu sinni. Hér á eftir verður stiklað á stóru í viðburðum helgarinnar.

Herlegheitin hófust með skrúðgöngu kl. 13:00 frá Nýja skólanum með "Gömlu lúðrasveitina" í broddi fylkingar. Ernst Torben Hemmingsen, danski varasendiherrann setti svo hátíðina á hátíðarsvæðinu í gamla bænum. Að því loknu opnaði markaðstjaldið þar sem ýmisskonar varningur var á boðstólum og ýmislegt til skemmtunar. Starfsfólk leikskólans var m.a. með sölubás og sungu þær fyrir alla sem gerðust svo góðir að versla hjá þeim og vöktu þær mikla lukku.

Glæsileg dagskrá var í boði á svæðinu og samanstóð hún af hinum ýmsu viðburðum. Lárus Á. Hannesson, söng einsöng og bekkurinn hans 5. bekkur grunnskólans síðastliðinn vetur flutti árshátíðaratriðið sitt sem var brot úr söngleiknum Frelsi og vöktu þau mikla lukku. Sigurþór Hjörleifsson var úrskurðaður sterkasti pabbi í heimi eftir harða keppni, svo var húlakeppni, persónur úr Latabæ komu fram og einnig fór fram söngkeppnin Stjörnuleit í Stykkishólmi og var það Ásta Hermannsdóttir sem bar sigur úr býtum.

Ekki má gleyma hinu landsfræga Aksjóni Lionsmanna en þeir vöktu að venju mikla lukku.

Að auki var nóg að gerast á lokuðu svæði við Aðalgötuna en þar var m.a. kassabílarallí, kassaklifur og veltibíll Sjóvár.
Upp úr kl. 19:00 hitnaði í kolunum og bæjarbúar og gestir þeirra streymdu að með gott á grillin, og raddirnar í brekkusönginn. Veitt var viðurkenning Lionsmanna fyrir fallegasta garðinn og voru það hjónin Steinar Ragnarsson og Guðný Jensdóttir að Áskinn 3 sem hlutu viðurkenninguna að þessu sinni. Þá var dregið í merkjahappdrætti og var það Guðrún Ákadóttir sem hreppti flug fyrir tvo til Köben í boði Icelandair.

Dansaður var hringdans og hitað upp fyrir bryggjuballið þar sem hljómsveitin Von hélt uppi stuði fram að miðnætti en þá var hátíðinni slitið með einni bestu flugeldasýningu Berserkja í manna minnum.
Veitngahús bæjarins voru hvert með sína dagskrá og hljómsveitin Brimkló vakti mikla lukku á dansleik á Hótel Stykkishólmi.

Það var mál manna að breytt snið á hátíðinni hafi fallið í góðan jarðveg og er Dönskudaganefndinni og framkvæmdastjóra hennar þökkuð vel unnin störf.
Vi ses igen næste år.