Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
21. ágúst 2003

Kóngasvarmar í Stykkishólmi

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Náttúrustofu Vesturlands barst tilkynning um stór fiðrildi í húsagarði við Ásklif 11 í Stykkishólmi í fyrrakvöld upp úr kl. 22:00.
Þess má geta að lifandi fiðrildi er til sýnis á Náttúrustofunni í Ráðhúsinu og er fólki velkomið að koma og skoða það.

 
 
 
 
 
 
 
 
Heimilisfólkið fylgdist þá með 5 stykkjum á blómstrandi skógartoppi og benti lýsingin til kóngasvarma (Agrius convolvuli).  Þegar starfsmaður Náttúrustofunnar mætti á staðinn voru fiðrildin farin en tveir kóngasvarmar birtust svo aftur skömmu síðar.
 
Um er að ræða fiðrildi sem flækst hefur hingað frá Evrópu.  Það er næturfiðrildi, þ.e. er fyrst og fremst á ferðinni eftir að skyggja tekur.  Kóngasvarmar lifa á blómasafa eins og önnur fiðrildi.  Þeir geta andæft fyrir framan blóm, stungið rananum inn í þau til að sjúga blómasafann og þurfa því ekki að setjast á blómið.  Þetta atferli og líkamsbygging þeirra (þykkur búkur) gerir það að verkum að kóngasvarmar minna á kólibrífugla þegar þeir éta og hafa verið misgreindir sem slíkir.
 
Þessi fiðrildi í Stykkishólmi eru hluti af göngu þessarar tegundar sem nú er á landinu.  Náttúrustofan hefur upplýsingar um að frá 9. ágúst hafi fundist eintök í Reykjavík Garðabæ, Selfossi, Neskaupstað, Blönduósi og nú síðast Stykkishólmi.
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Til gamans fylgja myndir af kóngasvörmum.  Hafið augun opin og vinsamlegast látið vita í s. 898-6638 ef þið sjáið fleiri svona kvikindi.  Af gefnu tilefni skal það tekið fram að fiðrildin eru með öllu skaðlaus og er ástæðulaustað hræðast þau.
 

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré