Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
24. ágúst 2003

Umferðarskólinn í Stykkishólmi.

Umferðarskólinn var haldinn í Stykkishólmi þann 14. ágúst sl.  þar sem farið var yfir mikilvægustu umferðarreglurnar og börnin frædd um nauðsyn þess að nota þann öryggisbúnað í umferð sem við á. Kennsluna önnuðust þau Alda Baldursdóttir kennari og fyrrverandi lögregluþjónn ásamt lögreglumanni á staðnum.

 

Bréf voru send til 36 barna og mættu 26 börn í skólann ásamt 19 foreldrum.  Börnin hlustuðu mjög vel og virtust skilja það sem fram fór og tóku virkan þátt í kennslunni.  Sagan um hann Binna bangsa fannst þeim skemmtileg. 
 
Að lokum fengu þau sérmerktan umferðarskólapoka, blað til að teikna á og lögreglustjörnu en foreldrarnir fengu bækling um börn og umferð.

 

 
 

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré