21. desember 2009
Friðarganga á Þorláksmessu
Hefð hefur skapast hér í Hólminum fyrir friðargöngu á Þorláksmessu og hefst hún skv. venju kl. 18.00. Gengið verður frá Hólmgarði niður á Pláss og munu Sr. Gunnar Eiríkur og Erla, bæjarstjóri leiða gönguna. 9. bekkur grunnskólans verður með sölu á kyndlum við upphaf göngu og heitt súkkulaði að henni lokinni. Að lokinni friðargöngu mun Efling Stykkishólms veita viðurkenningu fyrir best skreytta húsið í bænum sem nemendur 9. bekkjar hafa valið. Bókasafnið verður opið og er tilvalið að líta þangað inn að göngu lokinni.
Friðarganga á Þorláksmessu er tilvalin stund til að eiga með fjölskyldu og vinum mitt í jólaundirbúningnum. Fjölmennum og sýnum friðarvilja okkar í verki.
Vinsamlegast athugið að börnum í 6. bekk og yngri verða ekki seldir kyndlar séu þau ekki í fylgd með fullorðnum. Foreldrar og forráðamenn vinsamlegast hafið gætur á börnunum í nálægð eldsins, óhöppin gera ekki boð á undan sér.