Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
8. september 2003

Vígsla á Egilshúsi og opnun Viku Símenntunar

Undirritun samnings, Þorsteinn , Inga og Óli Jón
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Sunnudaginn 7. september fór fram vígsla á Egilshúsi í Stykkishólmi og opnun Viku símenntunar.
Athöfnin fór fram samtímis í Skriðu í Kennaraháskóla Íslands og í Egilshúsi í Stykkishólmi.  Opnunarhátíðin í Kennaraháskóla Íslands var því um leið hluti dagskrár á vígsluhátíð sem fram fór í Egilshúsi. 

Það var Tómas Ingi Olrich, menntamálaráðherra sem setti Viku símenntunar í gegn um fjarfundabúnað.  Að því loknu flutti Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri ávarp sem varpað var frá Egilshúsi og sameiginlegri dagskrá lauk með ávarpi Ólafs Proppé, rektors Kennaraháskóla Íslands.
Þá tók við sjálfstæð dagskrá í Egilshúsi þar sem Þorsteinn kynnti samning á milli Háskólans á Akureyri, Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands og Stykkishólmsbæjar um fjarnám í Viðskiptafræði og Sjávarútvegsfræði við háskólann frá og með þessu hausti og var samningurinn undirritaður að hlutaðeigandi aðilum að því loknu.  Átta nemendur hér í Stykkishólmi hafa hafið nám við háskólann í viðskiptafræði og einn í sjávarútvegsfræði.  Fjarnámsverið er opið fyrir þá bæjarbúa sem eru í fjarnámi og eru nokkrar tölvur til afnota, ásamt því að þráðlaust net er í húsinu fyrir þá sem nota eigin fartölvur og aðstaða til heimalærdóms.

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré