16. febrúar 2010

Vegna þjóðaratkvæðagreiðsla laugardaginn 6. mars 2010

Samkvæmt a-lið 1. mgr. 23. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000, sbr. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 4/2010, skal við þjóðaratkvæðagreiðsluna taka á kjörskrá alla þá sem skráðir voru með lögheimili í ákveðnu sveitarfélagi samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár þremur vikum fyrir kjördag, uppfylli þeir að öðru leyti skilyrði 1. mgr. 1. gr. kosningalaga.

 

 

Þetta þýðir að við þjóðaratkvæðagreiðsluna í næsta mánuði verða menn á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem þeir eru skráðir með lögheimili samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár laugardaginn 13. febrúar 2010.

 

Lögheimilisflutninga skal tilkynna til bæjarskrifstofunnar í Stykkishólmsbæ en einnig er hægt að tilkynna flutning til Þjóðskrár.

 

Stykkishólmsbær. 

 

Á næstunni
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré