4. mars 2010
Námskeið í markaðssetningu á netinu.
SSV-þróun og ráðgjöf og Símenntunarmiðstöð Vesturlands í samvinnu við Útflutningsráð Íslands standa fyrir námskeiði í markaðssetningu á netinu, en það er byggt á samnefndri bók sem kom út á dögunum.
Kennarar eru Guðmundur Arnar, markaðsstjóri hjá Icelandair og Kristján Már hjá Nordic eMarketing.
Um hvað snýst námskeiðið?
Farið verður yfir helstu samskiptaleiðir netsins á hagnýtan hátt með áherslu á ferðaþjónustu og hvernig samskiptaleiðir netsins geta skapað miklar tekjur. Markmiðið er að þátttakendur öðlist þekkingu sem nýtist þeim strax í starfi.
Kennslan byggir á bókinni "Markaðssetning á netinu" en bókin er innifalin í þátttökugjaldi námskeiðsins.
Námskeiðið verður haldið á tveimur stöðum á Vesturlandi fyrri partinn í mars:
Þriðjudaginn 9. mars kl. 18:00 - 22:00 í Fjölbrautaskóla Snæfellinga.
Miðvikudaginn 10. mars kl. 18:00 – 22:00 í húsnæði Símenntunar Bjarnarbraut 8 í Borgarnesi
Verð: 18.500 kr. (bókin innifalin)
Frekari upplýsingar er að finna á vef Símenntunar: http://simenntun.is/default.asp?sid_id=8275&tre_rod=001|&tId=2&fre_id=99264&meira=1
Kristín Björg Árnadóttir
Verkefnisstjóri/ráðgjafi
Átthagastofa Snæfellsbæjar - SSV þróun & ráðgjöf
Kirkjutún 2
355 Ólafsvík, Snæfellsbær
Sími: 433 6929
Farsími: 896 8060
Netfang: kristin@ssv.is