5. júlí 2007
Tilvalið að skella sér í golf um helgina
 |
|
Mynd: Bruce McMillan |
Veðurguðirnir halda áfram að leika við Stykkishólm næstu daga. Á föstudaginn er spáð 15° hita hægviðri (4 m/s) og sólarglennu, á laugardag og sunnudag verður svo 12-13° hiti, hægviðri og sólin mun án efa gera sitt besta til að brjótast fram úr skýjabökkunum sem umlykja restina af landinu. Ef litið er til helgarinnar og jafnvel til þriðjudags, má gera ráð fyrir að besta veðrið verði í Stykkishólmi og því tilvalið að skella sér á tjaldsvæðið í Hólminum og taka golfsettið og grillið með því það er bjart framundan í bænum.
Í Hólminum er aðstaða fyrir ferðamenn til fyrirmyndar. Gott tjaldstæði, 9 holu golfvöllur og sundlaug með heitum pottum og rennibraut. Úrval gisti- og veitingastaða er fjölbreytt, þ.a. allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Norska húsið, byggðasafn Snæfellinga og Vatnasafnið eru opin alla daga frá kl. 11-17. Tilvalið er að bregða sér í gönguferð um bæinn eða söguslóðir í nágreninu, fara í siglingu eða jafnvel í skemmtilegan kajak róður og upplifa einstaka náttúrufegurð Breiðafjarðar. Svo til að toppa helgina eru tónleikar sunnudaginn 8. júlí kl. 16:00 í Stykkishólmskirkju með Tríói Reynis Sigurðssonar þar sem jazz og suðræn sveifla munu ráða ríkjum.
Upplýsingamiðstöð ferðamála er staðsett í sundlauginni þar er m.a. hægt að fá aðgang að internetinu og einnig má geta þess að á tjaldstæðinu er þráðlaus netaðgangur fyrir þá sem hafa með sér tölvuna í fríið.
Kíktu á Hólminn í vefmyndavél bæjarins.