4. maí 2009
MENNINGARLANDIÐ 2009

Menntamálaráðuneyti, iðnaðarráðuneyti og Samband íslenskra sveitarfélaga, í samstarfi við menningarráð landsbyggðarinnar boðar til ráðstefnu á Hótel Stykkishólmi dagana 11. og 12. maí n.k.
Fjallað verður um reynsluna af menningarsamningunum og spurt hver árangur hafi orðið og hvert beri að stefna. Hvernig getum við nýtt okkur menningu og menningartengda ferðaþjónustu til nýrrar sóknar í nýsköpun og nýtingu menningararfs okkar?
Menningarráð landsbyggðarinnar kynna starfsemi sína og bjóða upp á fjölbreytt sýnishorn skapandi menningar. Fróðleg erindi og spennandi viðburðir.
Allir þeir sem
á einn eða annan hátt tengjast menningarstarfi og ferðamálum á Íslandi eru hvattir til að mæta á ráðstefnuna enda verða þær umræður sem þar fara fram grundvöllur að frekara samstarfi ríkis og sveitarfélaga um menningu og menningartengda ferðaþjónustu.
Nánari upplýsingar um dagskrá ráðstefnunnar og um skráningu er að finna á www.ferdamalastofa.is.
Dagskrána má nálgast hér.