Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
Leiðin þín: Forsíða - Mannlíf - Tíðindi
25. febrúar 2010

Smáskipanám

Til stendur að bjóða upp á hjá Visku, smábátanámskeið sem gefur réttindi á 12 metra skip/báta. 

 

Námsþættir eru eftirfarandi:

Siglingafræði og samlíkir

Slysavarnir

Siglingareglur og sjóréttur

Siglingatæki og fjarskipti

Skipahönnun og vélfræði

Stöðugleiki og skipstjórn

Veðurfræði og umhverfisvernd

 

Námið er u.þ.b. 115 kennslustundir og verður kennt mánudaga og miðvikudaga frá klukkan 18:00-21:30  og annan hvern laugardag frá 9:30-13:40 frá miðjum mars í sex vikur.  Nú er ljóst að kominn er hópur í Vestmannaeyjum en einnig eru þátttakendur á Norðurlandi eystra.

Um er að ræða réttindanámskeið sem haldið er í samvinnu við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum. Námið er kennt eftir núgildandi námskrá.

Námskeiðið kostar 75.000 kr. sem er sama verð og var á „pungaprófinu“ sem kennt var árið 2007.  Minnt er á niðurgreiðslu stéttarfélaga.

Áhugasamir vinsamlegast hafi samband við starfsfólk Visku í síma 481-1950 og 481-1111 eða á netfangið viska@eyjar.is

 

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré