Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
Leiðin þín: Forsíða - Mannlíf - Tíðindi
9. mars 2010

Opnun á Setrinu.

Setrið, aðstaða fyrir eldri borgara í kálfinum, var formlega tekið í notkun á fimmtudaginn í síðustu viku. Eydís Eyþórsdóttir, íþrótta- og tómstundafulltrúi og Gretar D. Pálsson, forseti bæjarstjórnar ávörpuðu gesti. Stykkishólmsbær færði Aftanskini, félagi eldri borgara, tölvu að gjöf. Lionsklúbburinn færði Setrinu blóm og þá hafði kvenfélagið fært félagsstarfi aldraðra saumavél að gjöf. Í tilefni vígslunnar var í Setrinu sýning á ýmsum munum sem unnir hafa verið í félagsstarfi aldraðra, s.s. myndlist, tréskurður og ýmis konar handavinna. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum lögðu margir leið sína í Setrið til að vera viðstaddir vígsluna og spjalla yfir kaffibolla og kleinum.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Eldri fréttir
MAR
APR
MAÍ
JÚN
JÚL
ÁGÚ
SEP
OKT
NÓV
DES
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré