Í og í nágrenni Stykkishólms eru margskonar og undurfögur útivistarsvæði. Bærinn sjálfur er eitt þeirra en gaman er að ganga um bæinn og virða fyrir sér bæjarstæðið sem er hæðótt og býður sífellt upp á ný sjónarhorn.
Í nágrenni bæjarins eru skógræktarsvæði Skógræktarfélags Stykkishólms og margar gönguleiðir um það í boði. Áningastaðir eru á skógræktarsvæðunum og er sumsstaðar grillaðstaða, borð/bekkir og fleira.
Vefur Skógræktarfélags