Norska húsið
Byggðarsafn Snæfellinga og Hnappdæla
 |
| Mynd: Eyþór Benediktsson |
Norska húsið er Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla og er fyrsta tvílfyfta íbúðarhús á Íslandi. Í Norska húsinu er áhugaverð krambúð í gömlum stíl. Þar fæst ýmislegt góðgæti, gjafavara, handverk, kort, kerti o.m.fl.
Sýningar í Norska húsinu sumarið 2012:
Fyrsta hæð: Æðarsetur Íslands er með aðstöðu í mjólkurstofu og eldhúsi á fyrstu hæð þar sem æðarfuglinn er kynntur í máli og myndum ásamt eldri og nýrri aðferðum við dúnhreinsun. Dúnsængur og listmunir eru einnig til sýnis og sölu.
Önnur hæð: Fastasýning á 19. aldar heimili Árna Ó. Thorlacius og Önnu Magdalenu Steenback konu hans en Árni lét reisa húsið úr tilsniðnum viði frá Noregi árið 1832.
Ris: Opin safngeymsla með munum frá fyrri hluta 20. aldar.
Opnunartími
Sumar:
opið til 30. ágúst
Opið alla daga frá kl. 12-17
Vetur:
Eftir samkomulagi
Hafnargata 5, Stykkishólmi
Sími 433 8114
Netfang: info@norskahusid.is
Kíktu á okkur á Facebook
Aðgangseyrir:
800 kr. fyrir fullorðna
500 kr. fyrir hópa fleiri en 10 (frítt fyrir skólahópa)
300 kr. fyrir börn, unglinga og ellilífeyrisþega
1.600 kr. fyrir fjölskyldur (2-3 fulloðnir og 2-3 börn)
Sýningarskrá á PDF formi