Föstudaginn 13. júní 2003 afhenti Landvernd smábátahöfninni í Stykkishólmi Bláfánann við hátíðlega athöfn. Smábátahöfnin í Stykkishólmi var fyrsta höfnin til að hljóta þessa alþjóðlegu viðurkenningu hér á landi.
Bláfáninn er alþjóðlegt merki fyrir hafnir sem uppfylla ströng skilyrði í umhverfis- og öryggismálum og hefur þann tilgang að stuðla að verndun umhverfis smábátahafna og baðstranda. Smábátahöfnum er veittur Bláfáninn hafi þær lagt sig fram um að vernda umhverfið, bæta öryggismál og aðstöðu í höfninni og veita fræðslu um náttúruna og umhverfisvernd. Þessi viðleitni á að treysta verndun umhverfis hafnarinnar og alla þá þjónustu sem höfnin býður upp á og vera öllum þeim sem nota eða heimsækja höfnina til hagsbóta.
Það eru alþjóðasamtökin Foundation for Enviromental Education, sem Landvernd á aðild að, sem standa að baki þessu merki. Stykkishólmshöfn hefur hlotið þessa viðurkenningu og flaggað Bláfánanum á hverju ári síðan 2003.