Grænfáninn

Yngri deildir Grunnskólans í Stykkishólmi (1. – 4. bekkur) voru staðsettar við Skólastíg fram til haustsins 2009. Þessar deildir fengu grænfánann afhentan í maí 2007 eftir að hafa flokkað og minnkað rusl verulega í einn vetur.

Veturinn 2008-2009 spöruðu yngri deildirnar orku til að halda fánanum áfram hjá sér.

Eldri deildir skólans eru að byrja vinnu til geta sótt um grænfánann.

Hér að neðan er mynd af fundi í umhverfishóp yngri deildanna haustið 2007. Aðalmál á dagskrá var: Hvernig spörum við orku ? 

Umsjón með grænfánaverkefni Grunnskólans hafði Sesselja Kristinsdóttir.

Nánar um grænfánann hér:  http://www.stykk.is/graenfani/index.html

Á næstunni
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré