Hvað er Green Globe?
Green Globe eru samtök sem votta ferðaþjónustufyrirtæki sem stunda sjálfbæran rekstur um allan heim. Hugmynd að stofnun samtakanna kviknaði í kjölfar Ríó ráðstefnunnar 1992 þar sem skrifað var undir Dagskrá 21 en Staðardagskrá 21 er byggð á 28. kafla hennar. Green Globe var síðan stofnað með stuðningi Alþjóðaferðamálaráðsins og Alþjóðaferðamálasamtakanna árið 1994. Á undanförnum árum hefur orðið mikil þróun innan Green Globe og hafa samtökin nú staðla til að geta vottað tæplega þrjátíu mismunandi greinar ferðaþjónustunnar, auk þess sem þau votta samfélög og einstaka áfangastaði ferðamanna. Green Globe eru einu vottunarsamtökin í heiminum sem votta samfélög.
Undirbúningur fyrir Green Globe vottun hófst á Snæfellsnesi árið 2002. Sveitarfélögin fimm og þjóðgarðurinn gengu formlega inn í Green Globe ferlið í maí árið 2003 og náðu fyrst viðmiðum Green Globe (2. skrefið af 3) í október árið 2004. Svæðið náði svo viðmiðunum aftur árin 2005, 2006 og 2007. Vottun náðist þann 8. júní 2008.
Nánar um Green Globe á Snæfellsnesi: http://www.nesvottun.is