FORSTÖÐUMAÐUR DVALARHEIMILIS ALDRAÐRA Í STYKKISHÓLMI
Stykkishólmsbær óskar eftir að ráða í starf forstöðumanns Dvalarheimilis aldraðra, Stykkishólmi. Um er að ræða 60%-100% starf, eftir samkomulagi. Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst, eða eftir nánara samkomulagi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga.
Starfssvið:
Umsjón og ábyrgð á umönnun heimilisfólks og sjúklinga í hjúkrunarrýmum
Umsjón og ábyrgð á rekstri Dvalarheimilisins
Menntunar- og hæfniskröfur:
Hjúkrunarfræðimenntun eða jafngilt nám
Frumkvæði og metnaður
Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
Góðir samskiptahæfileikar
Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi, sem er sjálfseignarstofnun, tók til starfa 9. ágúst 1978. Á heimilinu eru átján einsmanns- og tvö tveggja mannaherbergi. Fimmtán íbúðir fyrir aldraða eru tengdar Dvalarheimilinu.
Umsóknir skulu berast Stykkishólmsbæ, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi eða á netfangið erla@stykkisholmur.is
Umsóknarfrestur er til og með 27. nóvember nk.
Nánari upplýsingar veitir Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri, sími: 433 8100 og netfang: erla@stykkisholmur.is
Stykkishólmi 13. nóvember 2009
FORSTÖÐUMAÐUR DVALARHEIMILIS ALDRAÐRA Í STYKKISHÓLMI
Stykkishólmsbær óskar eftir að ráða í starf forstöðumanns Dvalarheimilis aldraðra, Stykkishólmi. Um er að ræða 60%-100% starf, eftir samkomulagi. Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst, eða eftir nánara samkomulagi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga.
Starfssvið:
Umsjón og ábyrgð á umönnun heimilisfólks og sjúklinga í hjúkrunarrýmum
Umsjón og ábyrgð á rekstri Dvalarheimilisins
Menntunar- og hæfniskröfur:
Hjúkrunarfræðimenntun eða jafngilt nám
Frumkvæði og metnaður
Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
Góðir samskiptahæfileikar
Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi, sem er sjálfseignarstofnun, tók til starfa 9. ágúst 1978. Á heimilinu eru átján einsmanns- og tvö tveggja mannaherbergi. Fimmtán íbúðir fyrir aldraða eru tengdar Dvalarheimilinu.
Umsóknir skulu berast Stykkishólmsbæ, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi eða á netfangið erla@stykkisholmur.is
Umsóknarfrestur er til og með 23. október nk.
Nánari upplýsingar veitir Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri, sími: 433 8100 og netfang: erla@stykkisholmur.is
Stykkishólmi 9. október 2009
Auglýsing um umferð í Stykkishólmsbæ
Samkvæmt heimild í 81. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 og að fengnum tillögum bæjarstjórnar Stykkishólmsbæjar hefur eftirfarandi verið ákveðið.
1. Biðskylda er á Laufásvegi fyrir umferð um Borgarbraut.
2. Biðskylda er á kirkjuaðkeyrslunni fyrir umferð um Borgarbraut.
3. Biðskylda er á Frúarstíg fyrir umferð um Aðalgötu og Hafnargötu.
4. Biðskylda er á Móholti fyrir umferð um Búðanesveg.
5. Gangbraut er á Súgandiseyjargötu við Smiðjustíg 3.
6. Einstefnuakstur á nyrðri hluta Skólastígs er felldur niður og tekinn upp tvístefnuakstur á Skólastíg.
Bæjarstjórinn í Stykkishólmi 8. október 2009
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar við Arnarborg í Stykkishólmi
Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar auglýsir hér með tillögu að breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar Stykkishólms í samræmi við 1. mgr. 26. grein skipulags- og byggingarlaga.
Breytingartillögur fela m.a. í sér aukið byggingarmagn á öllum lóðum, m.a. með leyfi fyrir byggingu á 30 m2 gestahúsum og stækkun á byggingarreitum i öðrum áfanga skipulagsins. Einnig gerir tillagan ráð fyrir einstökum tilfærslum á lóðarmörkum og stærðum lóða og mun sameiginlegt svæði fyrir byggðina skerðast. Vegur færist lítillega til og vegur við skógrækt felldur niður að hluta. Háspennuloftlína hefur verið lögð niður og strengur lagður í jörðu.
Tillagan verður til sýnis í Ráðhúsi Stykkishólmsbæjar frá 2. apríl til og með 30. apríl 2009. Einnig er hægt að kynna sér tillöguna hér.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til þess að skila inn athugasemdum er til og með fimmtudagsins 14. maí 2009.
Skila skal skriflegum athugasemdum til skipulags- og bygginganefndar Stykkishólmsbæjar Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi.
Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest, telst vera samþykkur henni.
Skipulags- og byggingarfulltrúi Stykkishólmsbæjar.
Stykkishólmi 1. apríl 2009
Stykkishólmsbær - Sumarstörf 2009
Sumarstarfsmenn óskast til starfa hjá Stykkishólmsbæ í eftirtalin störf:
· Starfsmenn í áhaldahúsi
· Verkstjóri Vinnuskóla
· Flokkstjórar við Vinnuskólann
· Umsjón með upplýsingamiðstöð
Umsóknarfrestur er til 24. apríl nk.
Vinnuskólinn byrjar 2. júní og er mæting kl. 8:00 við Áhaldahús Stykkishólmsbæjar, Nesvegi 7. Umsóknareyðublöðum Vinnuskóla verður dreift í grunnskólanum í apríl.
Krakkar fæddir árið 1995 vinna í 6 vikur frá 2. júní – 10. júlí.
Krakkar fæddir árið 1994 vinna í 9 vikur frá 2. júní – 31. júlí.
Krakkar fæddir árið 1993 og fyrr vinna í 12 vikur frá 2. júní – 21. ágúst.
Nánari upplýsingar gefa Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri og Högni Högnason, bæjarverkstjóri.
Umsóknareyðublöð fyrir sumarstörf má nálgast á bæjarskrifstofu að Hafnargötu 3 og hér.
Bæjarstjóri
Stykkishólmi 26. mars 2009
Dvalarheimili aldraðra Stykkishólmi - Sumarafleysingar
Starfsfólk óskast í sumar á Dvalarheimili aldraðra Stykkishólmi í afleysingarstörf. Umsóknareyðublöð má nálgast hér og í afgreiðslu á skrifstofu Stykkishólmsbæjar.
Umsóknir þurfa að berast skrifstofu Stykkishólmsbæjar, Hafnargötu 3, í síðasta lagi 17. apríl nk. Frekari upplýsingar veitir forstöðumaður dvalarheimilsins, Erla Björk Sverrisdóttir í síma 433-8165.
Stykkishólmi 25. mars 2009
LÚÐRASVEITARSTJÓRNANDI - MÁLMBLÁSTURSKENNARI
Málmblástur og lúðrasveit í Stykkishólmi
Laust er starf lúðrasveitarstjórnanda og málmblásturskennara við Tónlistarskóla Stykkishólms. Í skólanum er 40 manna lúðrasveit og lítil byrjendasveit.
Æskilegt að umsækjandi hafi reynslu af hljómsveitarstjórn.
Umsóknum skal skilað fyrir 15. apríl.
Upplýsingar gefur Jóhanna Guðmundsdóttir skólastjóri sími 433 8140 og 864 9254
netfang: tonlistarskolinn@stykkisholmur.is
Stykkishólmi 25. mars 2009
Auglýsing um deiliskipulag
Með vísan í 25. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, er auglýst eftir athugasemdum við deiliskipulagstillögu af tjaldstæði og golfvelli í Stykkishólmsbæ.
Deiliskipulagstillagan tekur til tjaldstæðis, golfvallar og aðkomu að þeim.
Núverandi þjónustuhús fyrir tjaldstæðið verður fjarlægt þegar að nýtt þjónustuhús verður tekið í notkun. Aðkoma að golfskála breytist og ný bílastæði gerð. Samkvæmt Aðalskipulagi Stykkishólmsbæjar er deiliskipulagstillagan hluti af opnu grænu svæði til sérstakra nota. Í tillögunni eru lagðar til nánari lóðarafmarkanir fyrir svæðin.
Deiliskipulagstillaga mun vera til kynningar í Ráðhúsi Stykkishólmsbæjar frá og með fimmtudeginum 5. mars 2009. Einnig er hægt að kynna sér tillöguna hér.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til þess að skila inn athugasemdum er til og með 28. apríl 2009.
Athugasemdir, ef einhverjar eru, skulu vera skriflegar og berast til skipulags- og byggingarfulltrúa Stykkishólmsbæjar, Hafnargötu 3.
Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest telst vera samþykkur henni.
Skipulags- og byggingarfulltrúi í Stykkishólmi.
Stykkishólmi 5. mars 2009