Tæknideild
Hlutverk tæknideildar er að hafa umsjón með verklegum framkvæmdum á vegum sveitarfélagsins s.s. viðhaldi fasteigna , gatnakerfi, holræsakerfi, opnum svæðum, sorpmálum og sumarvinnu unglinga. Tæknideildin fer einnig með skipulags- umhverfis- og byggingarmál samkvæmt skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997.
Á tæknideild starfa:
Bjarnfríður Vilhjálmsdóttir skipulags- og byggingarfulltrúi
Högni Högnason bæjarverksstjóri, áhaldahúsi
Hjalti Oddson áhaldahúsi
Bogi Bragason áhaldahúsi
Vatns- og hitaveita Stykkishólms er í eigu Orkuveitu Reykjavíkur . Starfsmaður OR í Stykkishólmi er Helgi Haraldsson.
Sorptaka er í höndum Íslenska Gámafélagsins ehf . Starfsmaður Íslenska Gámafélagsins í Stykkishólmi er Gunnar Jónsson. Upplýsingar um sorphirðu.
Stjórn skipulags- og byggingarmála.
Umhverfisráðherra fer með yfirstjórn skipulags- og byggingarmála í landinu . Ráðherra til aðstoðar er Skipulagsstofnun sem hefur m.a. eftirlit með að sveitarstjórnir framfylgi skipulags- og byggingarlögum.
Sveitarstjórnir annst gerð svæðis, aðal og skipulagsáætlana . Þær fjalla um leyfisumsóknir, veita byggingarleyfi og framkvæmdarleyfi. Einnig annast þær byggingareftirlit með atbeina kjörinna nefnda og sérhæfðra starfsmanna. (3.og 4.gr.skipulags- og byggingarlaga 28. maí, 1997).
Aðalskipulags Stykkishólms 2002 -2022.
Aðalskipulag Stykkishólms er sett fram í greinargerð og á skipulagsuppdrætti og er stefna bæjarfélagsins um landnotkun, samgöngu- og þjónustukerfi, umhverfismál og þróun byggðar í fram til árið 2022.
Aðalskipulag Stykkishólmsbæjar skipulagsuppdráttur 2002 – 2022
Breyting á aðalskipulagi 2005
Aðalskipulags Stykkishólmsbæjar greinargerð
Á grundvelli Aðalskipulags er unnið deiliskipulag.
Deiliskipulag nær yfir einstök svæði eða reiti innan bæjarfélagsins. Í deiliskipulagi eru teknar ákvarðanir m.a.um lóðarstærðir, legu gatna, byggingareiti , hæðir húsa og húsagerðir.
Deiliskipulög í gildi samkvæmt skipulags- og byggingarlögum nr. 73/ 1997:
Nónvík (Hjallatanga), dags. 15.05.2000
Frístundabyggð við Stykkishólm, dags. 28.08.2003
Frístundabyggð við Stykkishólm, breyting 25.06.2009
Stykkishólmur miðbær, dags. 26. maí 2005
Tjarnarás (leikskóli og parhús), dags. 26. maí 2005
Borgarbraut/Borgarhlíð íbúðasvæði, dags. 20.01.2005
Sjálfsafgreiðslu-eldsneytisstöð við Aðalgötu 26, dags. 27.01.2006
Athafnasvæði A2, dags. 16.03.2006
Verslunar og þjónustusvæði við Aðalgötu, dags. 18.03.2006
Víkurhverfi íbúðabyggð, dags. 25.01.2007
Borg, dags. 22.02.2007
Móholt, dags. 31.05.2007
Hafnarsvæði við Nesveg, dags. 31.05.2007
Stykkishólmur miðbær skipulagsuppdráttur
Greinagerð miðbær
Þinghúshöfði, dags. 23.06.2011
Þinghúshöfði greinargerð
Nónvík/Hjallatangi, nr. 123/2010
Deiliskipulög í gildi samkvæmt skipulagslögum nr. 123/2010:
Hesthúsasvæði Fákaborg, dags. 30.06.2011
Grenndarkynning.
Þegar að sótt er um byggingarleyfi í þegar byggðu hverfi og deiliskipulag liggur ekki fyrir eða um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi, skal skipulagsnefnd fjalla um málið og láta fara fram grenndarkynningu áður en erindið hlýtur afgreiðslu byggingarnefndar. Grenndarkynning felst í því að nágrönnum sem hagsmuna eiga að gæta, er kynnt málið og gefinn kostur á að tjá sig innan ákveðins tíma eða a.m.k. fjórar vikur. (Skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 7. mgr. 43 gr.)
Skipulags- og byggingarlög, nr. 73/1997, sbr. lög nr. 135/1997
Skipulagslög nr. 123/2010
Skipulagsreglugerð nr. 400/1998 (tók gildi 10. júlí 1998).
Byggingarreglugerð nr. 441/1998 (tók gildi 23. júlí 1998).
Samþykkt um sorphirðu og sorphreinsun