Skipulags- og byggingamál
Aðalskipulag 2002-2022
Aðalskipulag til ársins 2022 var samþykkt endanlega árið 2002. Forsendur við gerð aðalskipulagsins voru m.a. eftirfarandi:
-
Húsakönnun sem gerð var á vegum Stykkishólmsbæjar í samstarfi við Húsafriðunarnefnd og Skipulag ríkisins. Grunnur var lagður að endurbyggingu gamalla húsa sem setja mikinn svip á bæinn.
-
Skipulag hafnarinnar með ferjulagi og aðstöðu fyrir farþegabáta og skemmtibáta til jafns við fiskibáta.
-
Skipulag þjónustusvæða sem afmarkast af hótelinu, kirkjunni, skólanum, íþróttamiðstöðinni, verslunum og tjaldstæði.
-
Skipulag golfvallar innar bæjarmarkanna í tengslum við lóð hótelsins, við tjaldstæðin og í nágrenni við skógræktina sem er útivistarsvæði.
Aðalskipulag á pdf
Deiliskipulag
Á grundvelli aðalskipulags er unnið deiliskipulag einstakra hverfa. Þar er gerð grein fyrir notkun lands, tilhögun gatna, lóða, íbúðarhúsa, atvinnu- og þjónustuhúsnæðis, stofnana, leiksvæða og útvistarsvæða og annars, er þurfa þykir.
Miðbæjarskipulag
Hér er deiliskipulag miðbæjar á pdf formi
Byggingarframkvæmdir
Framkvæmdir við nýbyggingar, stækkun húsa eða breytingar á notkun þeirra, girðingar, skjólveggi eða hvers konar önnur mannvirki á lóðum eru háðar leyfi, sem bygginganefnd bæjarins veitir í samræmi við ákvæði laga, reglugerða og byggingarskilmála.
Bygginganefnd veitir ekki heimild til framkvæmda, sem brjóta í bága við skipulag og ákvæði laga og reglugerða eða rétt annarra og eru öll frávik frá þeim ákvæðum án sérstakrar skriflegrar umsóknar og samþykktar bygginganefndar á ábyrgð framkvæmdaaðila.
Skilmálar um byggingaframkvæmdir eru: Úthlutunarskilmálar, framkvæmdaskilmálar, skipulagsskilmálar og skilmálar veitustofnana og ber framkvæmdaaðilum að afla þeirra hjá byggingarfulltrúa.