Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
Bæjarráð, fundur nr. 426

Dags. 23.8.2007

 

 

426. fundur

 

Bæjarráð Stykkishólms hélt fund fimmtudaginn 23. ágúst 2007 kl. 17:00 í Ráðhúsinu.

 

Mætt voru:       Ólafur Guðmundsson, formaður

Gretar D. Pálsson

Berglind Axelsdóttir

                        Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri

                        Þór Örn Jónsson, bæjarritari.

 

 

Ólafur Guðmundsson setti fund og fól Erlu bæjarstjóra fundarstjórn.

 

1.  Fundargerðir nefnda.

     1.1.Húsnæðisnefnd, dags. 09.08.2007.

            Fundargerð framlögð og samþykkt.

1.2.   Skipulags- og bygginganefnd, dags. 14.08.2007.

       Fundargerð framlögð.

      Liður 1 Trausti Tryggvason Silfurgötu 41 sækir um að  staðsetja  gróðurskýli á lóðinni sbr. bréf dags. 13.08.2007.

Samþykkt að grenndarkynna erindi fyrir eigendum húsa við Silfurgötu 39, 43, 45 og 47 Skólastíg 26, 28 og 30.

      Liður 2 Sæþór H. Þorbergsson Vallarflöt 1, sækir um að klæða málaðan krossvið        með ljósum flísum við glugga hússins, sbr. bréf dags. 26.07.2007.

Erindi samþykkt.

      Liður 3 Alexander Helgason Laufásvegi 5 sækir um að fjarlægja skorstein á húsi           og  breyta jarðhæð í íbúð.

Erindi samþykkt.

      Liður 4 Sigurður Amlín Kristjánsson og Hanna D. Jónsdóttir Silfurgötu 23 sækja           um að byggja glerhýsi yfir svalapall sbr. teikningu dags. 26.06.2007.

Erindi samþykkt.

      Liður 6 Rakel Olsen óskar eftir að setja upp leiðbeiningarskilti við Ægisgötu nr.             3. Samþykkir að setja upp botnlangaskilti við Austurgötu.

 

Fundargerð samþykkt.

 

     1.3.Hafnarstjórn, dags. 20.08.2007.

            Fundargerð framlögð, liður 1 samþykkt að unnið verði deiliskipulag að hafnarsvæðinu.

            Liður 2 samþykkt að leigja bása við nýju flotbryggjuna frá 1. september n.k.

 

            Fundargerð samþykkt.

2.  Aðrar fundagerðir.

     2.1.             79. fundur Breiðafjarðarnefndar, dags. 29.05.2007. (www.breidafjordur.is)

            Fundargerð framlögð.

3.  Ársskýrslur.

     3.1.             Starfsskýrsla Náttúrustofu Vesturlands 2004-2006

            Starfsskýrsla framlögð.

     3.2.Ársreikningur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi 2006

            Ársreikningur framlagður.

4.  Lóðaumsóknir

4.1.Edda Baldursdóttir sækir um framlengingu lóðarumsóknar við Reitarveg, dags. 16.07.2007.

       Samþykkt að veita Eddu Baldursdóttur 6 mánaða framkvæmdafrest.

4.2.Sæþór Þorbergsson og Pétur Ágústsson sækja um lóð við höfnina á svokölluðum “garði” við Árnasteina í syðri hluta hafnarinnar fyrir hönd óstofnaðs eignarhaldsfélags, dags. 20.07.2007.

       Ekki hægt að úthluta lóð, þar sem ekki er búið að deiliskipuleggja hafnarsvæðið.

       Samþykkt að halda fund með hlutaðeigandi aðilum um málið.

     4.3.Atlantsolía ehf. sækir um lóð við Aðalgötu 35, dags. 27.07.2007.

Samþykkt að úthluta Atlantsolíu ehf. lóðina og skulu framkvæmdir vera hafnar fyrir 1. maí 2008.

4.4.             Nesvegur 12, tvær umsóknir. Gissur Tryggvason, dags. 02.08.2007 og Emilli ehf., dags. 21.08.2007.

       Samþykkt að veita Gissuri Tryggvasyni lóðina að Nesveg 12, þar sem umsókn hans barst á undan.

4.5.             Pétur Geirsson sækir um leyfi til að reisa tvö sumarhús í landi sem nefnist “Birgisborg”, dags. 15.08.2007.

       Umsókn hafnað, vegna þess að þetta svæði er ekki deiliskipulagt fyrir sumarhús.

5. Lántaka

     5.1.             Tilboð um lánveitingu, Lánasjóður sveitarfélaga (LS) til Stykkishólmsbæjar, dags. 16.08.2007.

      Ákvörðun um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga sem tryggt er með veði í    tekjum sveitarfélagsins:

 

   Bæjarráð samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð            40.000.000 kr. með 6,23% vöxtum til 10 ára, í samræmi við samþykkta skilmála        lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur          sveitarfélagsins, sbr. heimild í 3. mgr. 73. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Er             lánið tekið til að fjármagna framkvæmdir í miðbæ Stykkishólms, sbr. 2. gr. laga            um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 136/2004.

 

   Jafnframt er Erlu Friðriksdóttur kt. 011268-5879, veitt fullt og ótakmarkað umboð        til þess f.h. Stykkishólmsbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð             sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út,       og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku    þessari.

6.   Styrkbeiðnir.

      6.1. Kristín Björg Árnadóttir (hjá SSV þróun og ráðgjöf) f.h. Impru sækir um styrk, dags. 02.08.2007, vegna Brautargengisnámskeiðs.

             Erindi framlagt. SSV er að leita að öðrum leiðum til að fjármagna verkefnið.

7.   Erindi til kynningar.

   7.1. Aftanskin félag eldri borgara Stykkishólmi þakkar kærlega fyrir veittan styrk, ódags.

         Bréf framlagt.

7.2. Bréf Hafnarsambands Íslands, dags. 05.07.2007, vegna skerðingar aflaheimilda í þorski.

        Bréf framlagt.

7.3. Bréf Menningarráðs Vesturlands, dags. 23.07.2007 og fundargerð, dags. 04.07.2007. (www.menningarviti.is)

        Bréf og fundargerð framlögð.

7.4. Bréf frá Narfeyrarstofu, dags. 01.08.2007.

       Bréf framlagt

7.5. Fundarboð, dags. 15.08.2007, aðalfundur SSV verður haldinn fimmtudaginn 20. september n.k. að Hótel Hamri kl. 10.

       Fundarboð framlagt.

8.   Erindi til afgreiðslu

8.1. Bréf Sjávarútvegsráðuneytis, dags. 14.08.2007, varðandi sérstök skilyrði vegna úthlutunar byggðakvóta í Stykkishólmi.

        Samþykkt að svara bréfinu með sama hætti og á síðasta bæjarráðsfundi frá 19. júlí 2007 liður 8.a.

8.2. Bréf frá Gunnari Svanlaugssyni skólastjóra Grunnskólans í Stykkishólmi, dags. 15.08.2007, vegna kennslukvóta GSS skólaárið 2007-2008.

        Bæjarstjóra falið að ræða kennslukvóta við Gunnar Svanlaugsson skólastjóra.

8.3. Bréf frá Gunnari Svanlaugssyni skólastjóra Grunnskólans í Stykkishólmi, dags. 16.08.2007, varðandi tilraun til rekstur starfsdeildar á komandi starfsári frá bæjarráðsfundi nr. 423.

        Samþykkt að veita heimild til að gera tilraun með starfsdeild við Grunnskóla Stykkishólms.       

9.   Tilboð

      9.1. Opnun tilboða - í hádegismat í Grunnskóla Stykkishólms frá Fimm fiskum.

               Samþykkt að ganga til samninga við Fimm fiska um hádegismat í Grunnskóla                                 Stykkishólms.

10. Útboð á gatnagerð

      10.1. Útboð á gatnagerð við Laufásveg.

               Samþykkt að bjóða út gatnagerð við Laufásveg.

11. Tillögur

11.1.    Tillaga Gretars D. Pálssonar um að starf húsvaðar við Grunnskólann í    Stykkishólmi verði lagt niður frá og með starfslokum núverandi húsvarðar.

 

            Undirritaður leggur til að starf húsvarðar við Grunnskólann í Stykkishólmi verði   lagt niður frá og með starfslokum núverandi húsvarðar. Þess í stað verði sett á      laggirnar staða Umsjónarmanns fasteigna sem hafi það meginhlutverk að hafa      eftirlit með öllum fasteignum í eigu og umsjá Stykkishólmsbæjar, sinna    lágmarksviðhaldi og gera tillögur að stærri viðgerðum og viðhaldi fasteignanna.       Bæjarráð geri tillögur að starfslýsingu Umsjónarmanns fasteigna.        

 

            Gretar D.Pálsson

 

            Tillaga samþykkt samhljóða.

 

11.2.    Tillaga Ólafs Guðmundssonar um parhúsalóð við Skólastíg.

 

            Bæjarráð samþykkti á fundi 29. janúar 2004 lóðaumsókn Skipavíkur um           parhúsalóð við Skólastíg (Letisund) sem var svo staðfest í bæjarstjórn 19. febrúar    sama ár.  Í kjölfar minnispunkta frá fundi með áhugahópi vegna gamla             miðbæjarins var samþykkt á fundi bæjarstjórnar þann 23. júní 2005 að úthluta   ekki lóðum að sinni í miðbænum á meðan verið væri að skoða hugmyndir um         breytt skipulag. 

 

            Nú hefur sú vinna farið fram og framkvæmdir í miðbænum á lokastigi samkvæmt            gildandi deiliskipulagi.  Engar forsendur eru því lengur til staðar að stöðva eða   tefja frekar framkvæmdir á þessari lóð.  Því legg ég til að Skipavík fái aftur lóðina   með 12 mánaða byggingarfresti

 

            Ólafur Guðmundsson.

 

            Tillaga samþykkt samhljóða.

 

11.3.    Tillaga Berglindar Axelsdóttur um flutning grunnskólans niður á Borgarbraut.

 

            Ég vel að bera þessar tillögur upp saman vegna hversu þær eru tengdar hvor      annarri þannig að ekkert gagn er í að samþykkja aðra nema samþykkja hina.

 

            Ég undirrituð geri það að tillögu minni að hafist verði handa við að undirbúa og   byggja fjórar lausar kennslustofur í tveimur húsum við skólann við Borgarbraut.       Kennslustofurnar verði teknar til notkunar haustið 2008.  Náttúrustofa             Vesturlands og Háskólasetur Stykkishólms fái aðstöðu í gamla skólanum auk     Tónlistarskóla Stykkishólms. 

 

            Greinargerð:  Þar sem löngu er orðið tímabært  að koma Grunnskóla     Stykkishólms á einn stað legg ég til þessa einföldu, góðu og ódýru lausn. Það er    nemendum jafnt sem öðru starfsfólki mikil hagræðing og tímasparnaður í því að             þurfa ekki að fara á milli Gamla skólans og skólans við Borgarbraut.  Það er mikil          þörf á að Náttúrustofa Vesturlands og Háskólasetur Stykkishólms fái stærra     húsnæði til umráða þannig að þessar „stofnanir” geti vaxið og dafnað áfram sem         hingað til.  Sá peningur sem sparast í rekstri skólans við að fá hann á einn stað    mun nýtast til að borga af þeim kostnaði sem hlýst af framkvæmdunum.     Fjármagnið sem Háskóli Íslands mun leggja í nýtt húsnæði gæti nýst til að koma    þeirri virðulegu byggingu sem gamli skólinn er í boðlegt ástand. Jafnframt verði   hafinn undirbúningur að flutningi Tónlistarskóla Stykkishólms niður að     Borgarbraut.  Það má því segja að þarna sé möguleiki á að koma þremur             aðkallandi málum í rétt horf.  Því miður er staðan sú að stöðugt fækkar nemendum við Grunnskóla Stykkishólms og þeir árgangar sem eru í Leikskóla          Stykkishólms, verðandi nemendur við grunnskólann eru fámennir.

            Ég tel tillögu þessa allrar athygli verðar og vona að hún fái jákvæðar viðtökur.

 

            Berglind Axelsdóttir

 

Bókun Gretars D. Pálssonar.

 

Í skýrslu sem hópur um “Stefnumörkun í húsnæðismálum Grunnskólans í Stykkishólmi og Tónlistarskóla Stykkishólms” gaf út í nóvember 2005, kemur fram að samrekstur mun harla lítil áhrif hafa til lækkunar á kostnaði en nýting starfsfólks mun aukast vegna nálægðar og minni ferðatíma” (kafli 3.3 Fjármál) ”

Í niðurstöðu nefndarinnar kemur fram að:

 

Að brýnt er að Grunnskólinn verði í einu og sama húsnæðinu með sína starfsemi og að Tónlistarskóli verði á sama svæði/lóð/húsnæði og Grunnskólinn.

Að nýting starfsfólks verði betri og meiri ef skólarnir eru á sama svæði.

Að samlegðaeáhrif í rekstri geti leitt til lækkunar á rekstrarkostnaði.

að horfa beri til sveigjanleika og breytilegrar skólastefnu við hönnun húsnæðis.

Að skoða beri samþættingu, til dæmis heildagsskóla (frístundaskóla), félagsmiðstöðvar, bæjarbókasafns og sérhæfðrar starfsemi s.s. Svæðisskrifstofu fatlaðra í húsnæði Grunn- og Tónlistarskóla.

 

Og að lokum í tillögum hópsins:

 

Lagt er til að Grunnskólinn verði í einu og sama húsnæðinu með sína starfsemi og að tónlistarskólinn verði í samtengdu húsnæði. Húsnæði verði byggt upp á skólasvæðinu við Borgarbraut.

Lagt er til að samin verði skólastefna sem taki mið af nýrri tækni og nýjum tímum.

Lagt er til að við hönnun húsnæðis verði horft til sveigjanleika og breytilegrar skólastefnu.

Lagt er til að skipaður verði vinnuhópur sem haldi utan um þessa vinnu, (sjá dæmi um skipulag í viðauka 7.2)

 

Í ofangreindum hóp sátu Elísabet L Björgvinsdóttir, Gretar D Pálsson og Berglind Axelsdóttir.

 

Farið var að þessum tillögum og skipaður vinnuhópur (28 manns) sem hefur skilað sinni skýrslu (janúar 2007); “Skýrsla vinnuhóps vegna sameiningu skólanna”  Niðurstaða þeirrar skýrslu er í meginatriðum samhljóða niðurstöðum fyrri hópsins.

Í beinu framhaldi af þessari vinnu eru skólarnir að vinna að stefnumótun skólanna svo hægt sé að vinna hönnun nýbygginga í anda þeirra.

 

Stefnan í málefnum skólanna liggur fyrir.

 

Hvað húsnæðismál Náttúrustofu Vesturlands og Háskólaseturs varðar, þá eru þau mál í ákveðnum farvegi að höfðu samráði við stjórnendur og forsvarsmenn þeirra stofnana. Samþykkt er að ganga til samninga við Kaupþing um kaup á húsnæði bankans við Aðalgötu 10 og hafa kaup á því húsnæði verið handsöluð.

 

Í ljósi alls þessa ásamt vönduðum og faglegum vinnubrögðum þeirra sem unnið hafa af metnaði og ábyrgð að framtíðarlausn málefna skólanna;  stjórnenda, starfsmanna, foreldra og leikmanna, er það ábyrgðarleysi af  hálfu fulltrúa L-listans og ekki í anda lýðræðis að leggja fram illa ígrundaða tillögu án raunhæfs kostnaðarmats og án nokkurs samráðs við stjórnendur eða forstöðumenn viðkomandi skóla eða stofnana. Auk þess sem málefni þau sem tillögurnar taka til eru í ákveðnum farvegi sem sátt ríkir um.

 

Stykkishólmi 23.08.07

Gretar D. Pálsson

 

Tillaga felld með tveimur atkvæðum gegn einu.

 

12. Önnur mál.

a. Mótvægisaðgerðir í Stykkishólmi vegna 33% skerðingar á þorskveiðiheimildum.

Bréf Erlu Friðriksdóttur bæjarstjóra og Gretars D. Pálssonar forseta bæjarstjórnar til Geirs H. Haarde forsætisráðherra, lagt fram og kynnt af bæjarstjóra.

 

 

Fundargerðin upplesin og samþykkt.

Fundi slitið kl. 18:25

Þór Örn Jónsson, bæjarritari.



Til baka
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré