Bæjarráð, fundur nr. 427
Dags. 19.9.2007
Bæjarráð Stykkishólms hélt fund miðvikudaginn
19. september 2007 kl. 17:00 í Ráðhúsinu.
Mætt voru: Ólafur Guðmundsson, formaður
Gretar D. Pálsson
Berglind Axelsdóttir
Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri
Þór Örn Jónsson, bæjarritari.
Ólafur Guðmundsson setti fund og fól Erlu bæjarstjóra fundarstjórn.
1. Fundargerðir nefnda.
1.1. Skólanefnd Tónlistarskóla, dags. 27.08.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
1.2. Umhverfisnefnd, dags. 27.08.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt. Fyrirspurn um í hvaða ferli ábendingar nefndarinnar fara. Þær berast byggingafulltrúa sem vinnur síðan úr þeim í samvinnu við áhaldahús eða eftir því sem við á.
1.3. Fræðslunefnd, dags. 03.09.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt. Skólamáltíðir eru ekki niðurgreiddar af hálfu sveitarfélagsins.
1.4. Stýrihópur um framtíðarsýn Stykkishólmshafnar, dags. 03.09.2007 og 10.09.2007.
Fundargerðir framlagðar og samþykktar.
1.5. Skipulags- og byggingarnefnd, dags. 04.09.2007.
Fundargerð framlögð.
Liður 3 Bæring Bjarnar Jónsson f.h. Skipavík ehf. , sækir um breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar við Nesvog samkvæmt skipulagsuppdrætti frá teiknistofunni Glámu / Kím dags. 9.06.2007. Deiliskipulagstillagan var í grenndarkynningu sem óveruleg breyting á deiliskipulagi sbr. 2. mgr. 26 gr. skipulags- og byggingarlaga. Athugasemdir bárust frá Starfsmannafélagi Kópavogs /Jófríði Hönnu Sigfúsdóttur bréf. dags. 16.08.2007, Starfsmannafélagi Hafnarfjarðar / Haraldi Eggertssyni bréf dags. 21.08.2007 og Starfsmannafélagi Garðabæjar / Gunnari Erni Erlingssyni bréf. dags. 23.08.2007.
Samþykkt er a) að horfið verði frá að breyta lóðarstærðum á lóðum þ.m.t .á sameiginlegri lóð nr. 17 b) að skoðaðir verði möguleikar á stækkun byggingareita húsa í áfanga nr. 1
Liður 4 Sigurður Páll Jónsson og Hafdís Björgvinsdóttir sækja um að byggja hús að Hjallatanga nr. 46, samkvæmt teikningum frá Loftorku/ Vigni Jónssyni dags. 08.08.2007. Stærðir samtals: 281,2 m2, 1.211,5 m3.
Erindi samþykkt.
Liður 5 Baldur Þorleifsson Ásklif 10 sækir um að byggja viðbyggingu við húsið og að loka svölum samkvæmt teikningum frá Hjörleifi Sigurþórssyni / Brynjari Daníelssyni dags. ágúst 2007.
Viðbygging samþykkt þar sem hún er innan byggingarreits.
Liður 6 Baldur Þorleifsson Ásklif 10 og Guðjón Hjaltalín Ásklif 8 sækja um leyfi fyrir frágang á lóðarmörkum með bílastæðum samkvæmt teikningu frá Hjörleifi Sigurþórssyni/Brynjari Daníelssyni dags. ágúst 2007.
Erindi samþykkt.
Liður 7 f.h. Narfeyri ehf /Baldur Þorleifsson sækir um niðurrif á byggingu við Þverveg nr. 12, áður Aðalgötu 6b og 6c.
Erindi samþykkt.
Liður 8 Kaupþing banki/ Sigurður Kristjánsson Staðalhúsum óska eftir færslu á byggingarreit á lóð við Aðalgötu 17.
Samþykkt er að grenndarkynna erindið fyrir Aðalgötu 15 og 21, Laufásvegi 10,12 og 14 samkvæmt 2. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga.
Liður 10 f.h. Skipavík ehf/ Sævar Harðarson sækir um við Reitaveg 12 að setja innkeyrsludyr á austur- gafl, á suðurhlið og norðurhlið hússins með aðkomu frá porti sbr. bréf dags. 2.09.2007.
Erindi samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
1.6. Þjónustuhópur aldraðra, dags. 13.09.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
2. Aðrar fundagerðir.
2.1. 80. fundur Breiðafjarðarnefndar, dags. 17.07.2007. (www.breidafjordur.is)
Fundargerð framlögð.
3. Erindi til kynningar.
3.1. Bréf Menntamálaráðuneytis, dags. 10.09.2007 varðandi skýrslu um úttekt á FSN.
Bréf Menntamálaráðuneytis framlagt.
3.2. Bréf SSV, dags. 21.08.2007 varðandi gjaldskrárbreytingu Sorpurðunar Vesturlands.
Bréf SSV framlagt.
3.3. Efnahags og rekstrarreikningur KKD-meistaraflokks Snæfells, dags. 20.08.2007.
Framlagt.
3.4. Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 05.09.2007 varðandi verkefni um hagsmunagæslu í úrgangsmálum.
Framlagt.
3.5. Dagskrá aðalfundar SSV, 20. september 2007.
Dagskrá framlögð.
3.6. Bréf SSV, dags. 07.09.2007 varðandi lagabreytingar.
Bréf SSV framlagt.
3.7. Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 07.09.2007 varðandi viðmiðunarreglur um kirkjugarðsstæði o.fl.
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga framlagt.
4. Kæra.
4.1. Félagsmálaráðuneytið, dags. 21.08.2007 varðandi stjórnsýslukæru frá Heimi Jóhannssyni.
Bréf ásamt fylgigögnum varandi stjórnsýslukæru framlögð. Umsögn vegna stjórnsýslukæru Heimis Jóhannssonar samþykkt.
5. Erindi til afgreiðslu.
5.1. Bréf Tónlistarskóla Stykkishólms, dags. 30.08.2007 varðandi beiðni um aukningu á kennslukvóta skólaárið 2007-2008.
Samþykkt að auka kennslukvóta um fimm tíma á viku skólaárið 2007-2008.
5.2. Bréf Berglindar Lilju Þorbergsdóttur, dags. 23.08.2007 varðandi Laufásveg, nýjan hluta.
Samþykkt að vísa bréfinu til skipulags- og bygginganefndar til umsagnar.
5.3. Bréf Sæferða ehf., dags. 03.09.2007 varðandi breytingar á áætlun ferjunnar Baldurs.
Breytingar á áætlun ferjunnar Baldurs samþykktar.
5.4. Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 11.09.2007 varðandi hagsmunagæslu í úrgangsmálum.
Framlagt og samþykkt að Sorpurðun Vesturlands greiði hlut sveitarfélagsins, með vísan í bréf Sorpurðunar Vesturlands frá 11. september s.l.
5.5. Bréf sveitarfélaganna á Snæfellsnesi til Ríkisstjórnar Íslands, dags. 18.09.2007 varðandi aðgerðir til að mæta samdrætti í úthlutuðum aflaheimildum á Snæfellsnesi.
Bréf framlagt og samþykkt.
6. Styrkbeiðnir.
6.1 Bréf Hvítasunnukirkjunnar, dags. 11.09.2007 varðandi styrk á árlegum opinberum gjöldum.
Samþykkt að veita Hvítasunnukirkjunni styrk að upphæð kr. 122.116, Hvítasunnukirkjunni er bent á Orkuveitu Reykjavíkur í sambandi við styrk vegna vatnsgjalds.
7. Samningar.
7.1. Vegagerðin og Stykkishólmsbær, dags. 17.08.2007 varðandi viðhald á þjóðvegi í þéttbýli fyrir árið 2007.
Samningur framlagður og staðfestur.
7.2. Stykkishólmsbær og Fimm fiskar, dags. 29.08.2007 varðandi sölu á mat til grunnskólanemenda.
Samningur framlagður og staðfestur.
7.3. Kaupsamningur. Hamraafl og Stykkishólmsbær, dags. 31.08.2007 varðandi Hamraenda 3.
Samningur framlagður og staðfestur.
8. Tilboð.
8.1. Opnun tilboða – í gatnagerð við Laufásveg.
Samþykkt að ganga til samninga við lægstbjóðendur, þ.e. Palli Sig. Ehf., EB vélar ehf. og Stefán Björgvinsson.
9. Tillögur og fyrirspurnir.
9.1. Tillaga Berglindar Axelsdóttur um „Grænar sorptunnur“.
Undirrituð leggur til að Stykkishólmsbær bjóði bæjarbúum upp á þann valkost að leigja sorptunnur þar sem fólk getur sett pappír sem til fellur ásamt dósum plastflöskum og niðursuðudósum svo eitthvað sé nefnt.
Greinargerð: Það er trú mín að fólk flokki frekar ef það hefur tunnuna í næsta nágrenni auk þess sem það eru alltaf einhverjir sem ekki búa við þær aðstæður að komast með sorp í móttökustöðina Snoppu.
Berglind Axelsdóttir
Tillaga feld með tveimur gegn einu.
Varðar tillögu um “Grænar sorptunnur”
Undirritaðir greiða atkvæði gegn tillögu Berglindar þar sem
Stykkishólmsbær hefur frá því síðastliðið vor verið í viðræðum við Íslenska gámafélagið ehf. um fjölgun sorptunna og frekari flokkunar sorps ásamt því að kanna möguleika á miðlægri moltugerð fyrir Stykkishólmsbæ. Íslenska gámafélagið hyggst leggja fram kostnaðarmat og hugmyndir um leiguverð á viðbótar sorptunnum fyrir flokkað sorp. Fyrr en það liggur fyrir eru ekki nægjanlegar forsendur til frekari aðgerða.
Tillaga Berglindar er ótímabær. Hún miðar annars vegar að því að hvetja til verkefnis sem nú þegar er í vinnslu á vegum Stykkishólmsbæjar og hins vegar að því að taka ákvörðun án þess að fullnægjandi forsendur liggi fyrir.
Gretar D. Pálsson
Ólafur Guðmundsson
9.2. Tillaga Berglindar Axelsdóttur um skráningu á atkvæðagreiðslu.
Undirrituð leggur til að það komi fram í fundargerðum Bæjarstjórnar og Bæjarráðs hverjir það eru sem greiða atkvæði á móti eða sitja hjá.
Berglind Axelsdóttir
Tillaga feld með tveimur gegn einu.
Varðar tillögu um skráningu atkvæðagreiðslu.
Tekið er á meðhöndlun atkvæðagreiðslna og skráningu þeirra í “Samþykkt um stjórn og fundarsköp Stykkishólmsbæjar”, sbr. 30.gr., 31.gr., 32.gr. Því til viðbótar má benda á almenna reglu fundarskapa að fundarmenn hafa rétt til að gera grein fyrir atkvæði sínu og/eða bóka afstöðu sína (sbr. Sveitarstjórnarréttur- Fundir og fundarsköp e. Gunnar Eydal). Réttur þessi er óháður því hvernig menn verja atkvæði sínu hverju sinni, með, á móti eða með hjásetu.
Undirritaðir greiða atkvæði gegn tillögu Berglindar og leggja til að áfram verði farið að samþykktum um stjórn og fundarsköp Stykkishólmsbæjar ásamt almennum reglum um fundarsköp. Það verði því áfram undir fundarmönnum komið hverju sinni hvort og hvernig þeir óski eftir að afstaða þeirra sé bókuð.
Gretar D. Pálsson
Ólafur Guðmundsson
9.3. Fyrirspurn Berglindar Axelsdóttur um stöðu viðræðna um Víkurhverfið.
Skipavík hefur óskað að viðræður verði teknar upp að nýju.
9.4. Fyrirspurn Berglindar Axelsdóttur um hvernig staðið var á vali á fólki sem boðað var á fund hjá Stýrihópi um mótun fjölskyldustefnu.
Stýrihópurinn sjálfur sá um að boða fólk á sinn fund.
10. Önnur mál.
10.1. Árshátíð starfsmanna Stykkishólmsbæjar 2007.
Samþykkt að halda Árshátíð starfsmanna Stykkishólmsbæjar 2007 og að hver stofnun Stykkishólmsbæjar tilnefni einn fulltrúa í árshátíðarnefnd.
10.2. Bæjarstjóri gerði grein fyrir að í undirbúningi er að stofna Heilsueflingarklasa í Stykkishólmi.
Íris Huld Sigurbjörnsdóttir og Gyða Steinsdóttir hafa tekið að sér að leiða verkefnið.
Fundargerðin upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl. 18:40
Þór Örn Jónsson, bæjarritari.
Til baka