Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
Bæjarráð, fundur nr. 428

Dags. 4.10.2007

Bæjarráð Stykkishólms hélt fund miðvikudaginn 4. október 2007 kl. 17:40 í
Ráðhúsinu.

 

Mætt voru: Ólafur Guðmundsson, formaður
                 Gretar D. Pálsson
                 Berglind Axelsdóttir
                 Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri
                 Þór Örn Jónsson, bæjarritari.


Ólafur Guðmundsson setti fund og fól Erlu bæjarstjóra fundarstjórn.

 

1. Fundargerðir nefnda.

1.1. Umhverfisnefnd, dags. 24.09.2007 og 02.10.2007.
Fundargerðir framlagðar og samþykktar.
Bæjarráð tekur undir ábendingu umhverfisnefndar um að

hundaeigendur taki upp úrgang eftir hunda sína og hafi

hunda sína í bandi.
Stöðuleyfi við Reitarveginn eru útrunnin og verða ekki

endurnýjuð. Eigendum er bent á aðstöðu á geymslusvæði

 í Heljarmýri.

 

1.2. Safna- og menningarmálanefnd, dags. 25.09.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt.

1.3. Skipulags- og byggingarnefnd, dags. 02.10.2007.
Fundargerð framlögð.
Liður 1 Hjörleifur Sigurþórsson/ Brynjar Daníelsson f.h.

eigenda Skólastígs nr. 12 sækja um  að rífa húsið og

byggja nýtt samkvæmt teikningum dags. 25.08.2007,

en með síðari breytingum frá 14.9 2007. Einnig er sótt

um afmörkun á lóð. Stærðir: 108,1 m2, 275,4m3. 
Umsögn frá Húsfriðunarnefnd Ríkisins liggur fyrir

dags. 4.05.2007.
Samþykkt að grenndarkynna erindið samkvæmt

7. mgr. 43 gr. skipulags- og byggingarlaga  fyrir

Höfðagötu nr. 2 og 5, Skólastíg nr.7, 8, 9 og 10, 

 Bókhlöðustíg nr. 8 og 10.
Erindi samþykkt.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Liður 2 Trausti Tryggvason Silfurgötu 41 sækir um

að  staðsetja  gróðurskýli á  lóðinni sbr. bréf

dags. 13.08.2007. Erindið var grenndarkynnt  fyrir

eigendum húsa við Silfurgötu 39, 43, 45 og 47

Skólastíg 26, 28 og 30. Engar athugasemdir  bárust.
Erindi samþykkt.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Liður 3 Baldur Þorleifsson Ásklif 10 sækir um að loka

svölum samkvæmt  teikningum frá

Hjörleifi Sigurþórssyni / Brynjari Daníelssyni dags. ágúst 2007.
Erindi samþykkt.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Liður 4 Narfeyri ehf /Baldur Þorleifsson sækir um að

flytja hús að Þvervegi nr.  12 og byggja við það

samkvæmt teikningum frá Hjörleifi Sigurþórssyni/Brynjari  

Daníelssyni dags 14.09.2007. Stærðir samtals: 132,4 m2, 391 m3.
Erindi samþykkt.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Liður 8 Tindur ehf, sækir um að byggja stálgrindarskemmu

að Nesvegi 14  samkvæmt teikningum frá

Verkfræðistofu E.K. dags. sept. 2007. Stærðir samtals:

196.6 m2, 946,6 m3.
Erindi samþykkt.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Liður 9 Gunnlaugur Auðunn Árnason óskar eftir að

staðsetja upplýsingaskilti við  Sæmundarpakkhús

sbr. bréf dags. 28.09.2007.
Erindi samþykkt.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Liður 10 Stykkishólmsbær óskar eftir að nýta svæðið 

norðaustur af  Snoppu fyrir geymslupláss.
Erindi samþykkt.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Liður 11 Símon Sturluson sækir um að setja milliloft í

byggingar við  Hamraenda  3, eða mhl. 02-0103,

mhl. 01-0103 og 01-0102, samkvæmt teikningum frá  

Verkfræðistofu E.K. dags. sept. 2007.
Erindi samþykkt.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Fundargerð samþykkt.

 

1.4. Stýrihópur um mótun fjölskyldustefnu Stykkishólmsbæjar,

dags. 10.04.2007, 21.05.2007.
Fundargerðir framlagðar og samþykktar.

 

2. Aðrar fundagerðir.
2.1.  80. fundur Breiðafjarðarnefndar, dags. 24.08.2007.

(www.breidafjordur.is)
Fundargerð framlögð.

 

3. Erindi til kynningar.
3.1. Bréf Umhverfisráðuneytis, dags. 20.09.2007 varðandi

 boð á Umhverfisþing 12. og 13. október 2007.
Bréf Umhverfisráðuneytis framlagt.

3.2. Bréf Menntamálaráðuneytis, dags. 21.09.2007.
Bréf Menntamálaráðuneytis framlagt.

3.3. Bréf Héraðsnefndar Snæfellinga – Gróðurverndarnefndar,

dags. 24.09.2007 varðandi gróðurvernd.
Bréf Gróðurverndarnefndar framlagt.

3.4. Bréf Landsskrifstofu Staðardagskrár 21 á Íslandi,

dags. 25.09.2007 varðandi ráðgjöf vegna Staðardagskrár 21.
Bréf Landsskrifstofu Staðardagskrár 21 á Íslandi framlagt.

3.5. Bréf Svæðisráðs málefna fatlaðra á Vesturlandi, ódags.
Bréf Svæðisráðs málefna fatlaðra á Vesturlandi framlagt.

 

4. Styrkbeiðnir.
4.1.  Bréf Upplýsinga- og kynningarmiðstöðvar Vesturlands,

dags. 14.09.2007 varðandi styrkbeiðni.
Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.

 

5. Samningar.
5.1. Verksamningur milli Stykkishólmsbæjar og Palla Sig. ehf.,

EB véla ehf. og Stefáns Björgvinssonar, dags. 27.09.2007 um

endurbætur á Laufásvegi.
Verksamningur milli Stykkishólmsbæjar og Palla Sig. ehf.,

EB véla ehf. og Stefáns Björgvinssonar framlagður og staðfestur.

 

5.2. Samningur Stykkishólmsbær og OneSystems varðandi

kaup á rafrænu mála- og skjalastjórnunarkerfi.
Samningur Stykkishólmsbæjar og OneSystems framlagður

og staðfestur.

 

6. Kauptilboð.
6.1. Kauptilboð frá Ómari Erni Gunnarssyni,

dags. 01.10.2007 í húseignina Áskinn 2a.
Kauptilboð Ómars Arnar Gunnarssonar samþykkt í

húseignina Áskinn 2a.

 

7. Lóðarumsókn.
7.1 F.h. óstofnaðs félags sækja Jón Á. Ingólfsson og

Páll V. Þorbergsson um reit merktan Aa v/Laufásvegar og

Borgarbrautar, dags. 24.09.2007.
Samþykkt að veita óstofnuðu félagi Jóns Á. Ingólfssonar

og Páls V. Þorbergssonar lóðina Aa v/ Laufásveg og

Borgarbraut fyrir verslun og þjónustu samkvæmt gildandi

deiliskipulagi. Berglind situr hjá.

 

7.2. Ýsuheiði ehf. sækir um lóð við Nesveg 16 og

viðbyggingu við iðnaðarhúsnæði sem Gestur Hólm,

S. Sturluson ehf. og ÞB Borg ehf. eiga, dags. 03.10.2007.
Samþykkt að vísa umsókn til umsagnar í skipulags-og

bygginganefnd, ásamt hafnarstjórn.

 

8. Umsóknir um starf forstöðumanns æskulýðsmiðstöðvar.
Samþykkt að bæjarstjóri gangi til samninga við

Maríu Kúld Heimisdóttir og Matthías   Arnar Þorgrímsson.

 

9. Erindi til umsagnar.
9.1. Reglugerð um lögreglusamþykkt

(http://www.samband.is/files/793485953drog_reglug_um

logreglusamthykktir.pdf)
Bæjarráð hefur engar athugasemdir.

 

10. Til afgreiðslu
10.1. Tilboð Íslenska gámafélagsins í miðlæga moltugerð

og grænar tunnur á hvert heimili í Stykkishólmsbæ.
Samþykkt að bæjarstjóri gangi til samninga við Íslenska

gámafélagið um  

miðlæga moltugerð og grænar tunnur á hvert heimili í

Stykkishólmsbæ.

0.2. Drög að starfslýsingu umsjónarmanns fasteigna

Stykkishólmsbæjar.
Drög framlögð.

 

11. Önnur mál.
11.a Varðandi skráningu atkvæða.

Bókun

Varðar bókun minnihlutans á síðasta bæjarstjórnarfundi

nr. 227 um skráningu atkvæða.

Í bókun minnihlutans frá bæjarstjórnarfundi nr. 227 er

röng staðhæfing.  Minnihlutinn staðhæfir að á síðari hluta

síðasta kjörtímabils hafi mátt lesa úr fundargerðum

hvernig einstakir fulltrúar greiddu atkvæði. 

Skv. talningu á afgreiðslum eru 759 samþykktir í

fundargerðum bæjarstjórnar og bæjarráðs á síðari

hluta síðasta kjörtímabils þ.e. frá 1. janúar 2005 fram

að kosningum.  Þar af eru skráðar atkvæðagreiðslur

með mun 12.  Af þessum 12 atkvæðagreiðslum eru 5 þeirra

skráðar með afstöðu.  Það sem af er þessu kjörtímabili eru

samtals 965 samþykktir í fundargerðum bæjarstjórnar og

bæjarráðs.  Þar af eru 22 atkvæðagreiðslur með mun og 16

af þeim skráðar með afstöðu. Ennfremur má sjá á bókunum

með atkvæðagreiðslu þegar það á við hver afstaða

bæjarfulltrúa er. Því er hafnað að um lýðræðislega afturför

sé að ræða og minnt á að það er undir hverjum bæjarfulltrúa

komið hvernig viðkomandi óskar eftir að atkvæði hans sé

bókað hverju sinni. Það eru slök vinnubrögð af hálfu

minnihlutans að slá fram staðhæfingu eins og í

framangreindri bókun að óathuguðu máli.

Gretar D. Pálsson
Ólafur Guðmundsson

 


Fundargerðin upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl. 19:05
Þór Örn Jónsson, bæjarritari.



Til baka
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré