Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
Bæjarráð, fundur nr. 429

Dags. 8.11.2007

Bæjarráð Stykkishólms hélt fund fimmtudaginn 8. nóvember 2007 kl. 17:00 í Ráðhúsinu.

 

Mætt voru: Ólafur Guðmundsson, formaður
                 Gretar D. Pálsson
                 Berglind Axelsdóttir
                 Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri
                 Þór Örn Jónsson, bæjarritari.


Ólafur Guðmundsson setti fund og fól Erlu bæjarstjóra fundarstjórn.

 

1. Fundargerðir nefnda.

1.1. Stýrihópur um mótun fjölskyldustefnu Stykkishólmsbæjar, dags. 21.05.2007, 18.06.2007, 04.09.2007, 18.09.2007 og 09.10.2007.
Fundargerðir framlagðar og samþykktar.

 

1.2. Fræðslunefnd, dags. 08.10.2007 og 05.11.2007.
Fundargerðir framlagðar og samþykktar.
 

1.3. Stjórn Dvalarheimilis aldraðra, dags. 10.10.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
 

1.4. Skólanefnd Tónlistarskóla, dags. 10.10.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt. Bæjarráð fagnar því að Martin hafi dregið uppsögn sína til baka.

 

1.5 Þjónustuhópur aldraðra, dags. 11.10.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
  

1.6. Æskulýðs- og íþróttanefnd, dags. 25.10.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt. Bæjarráð fagnar því að starfið í X-inu sé komið af stað.
  

1.7. Umhverfisnefnd, dags. 29.10.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
  

1.8. Skipulags- og byggingarnefnd, dags. 30.10.2007.
Fundagerð framlögð.
Liður 1 Kaupþing banki /Sigurður Kristjánsson Staðalhúsum óskar eftir færslu á byggingarreit á lóð við Aðalgötu nr. 17. Engar athugasemdir bárust.
Lagt er til að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Bæjarráð fagnar því að vinna við endurskoðun á Aðalskipulagi sé komið í gang.
Fundargerð samþykkt.

 

2. Aðrar fundagerðir.

2.1.  80. fundur Breiðafjarðarnefndar, dags. 02.10.2007. (www.breidafjordur.is)
Fundargerð framlögð.

 

3. Erindi til kynningar.

3.1. Bréf SSV, dags. 09.10.2007 varðandi ályktun um þjóðlendumál.
Bréf SSV framlagt.

 

3.2. Bréf Landverndar, ódags. varðandi skóla á grænni grein. 
Bréf Landverndar framlagt.

 

3.3. Bréf Félagsmálaráðuneytis, dags. 12.10.2007 varðandi reglur um ráðstöfun á 1.400 millj. kr. aukaframlags til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2007.
Bréf Félagsmálaráðuneytis framlagt.

 

3.4. Bréf Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands, dags. 19.10.2007 varðandi úthlutun úr Styrktarsjóði EBÍ 2007.
Bréf Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands framlagt.

 

4. Styrkbeiðnir.

4.1. Bréf Kórs Fjölbrautaskóla Suðurlands, dags. 17.10.2007 varðandi styrkbeiðni vegna ferðar til Danmerkur.
Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við styrkbeiðninni.

 

4.2. Bréf Nemendafélags Fjölbrautaskóla Snæfellinga, dags. 23.10.2007 varðandi styrkbeiðni.
Bæjarráð leggur til að bæjarstjóri hafi samráði við aðra bæjarstjóra á Snæfellsnesi og þeir leggi fram sameiginlega tillögu.

 

5.Tilboð

5.1. Opnun tilboða – í gatnagerð og lagnir við Móholt.
Um er að ræða sameiginlegt útboð Stykkishólmsbæjar, OR, Mílu og Rarik. 
Eftirfarandi tilboð bárust:
Berglín ehf.   17.239.025,-
Stekksnáma ehf. 23.870.045,-
Borgarverk ehf. 25.730.000,-
BB og synir ehf. 17.752.615,-
Fínafl ehf.   20.031.750,-

OR samþykkir ekki að taka lægsta tilboði, þar sem tilboðið samræmis ekki verklagsreglum þeirra. Míla og Rarik mæla með að næst lægsta tilboði verði tekið. Samþykkt að kalla eftir ársreikningi frá Berglín ehf., og BB og sonum ehf., ásamt undirverktökum einnig er beðið um staðfestingu á að fyrirtækin séu skuldlaus við opinbera aðila.

 

 

6. Tilnefningar í nefndir.

6.1. Tilnefning varamanns D-listans í æskulýðs- og íþróttanefnd í stað Árdísar Gísladóttur og tilnefning varamanns L-listans í stað Bylgju Mistar Gunnarsdóttur.
D-listinn tilnefnir Írisi Huld Sigurbjörnsdóttur og L-listinn tilnefnir Einar Gunnarsson sem aðalmaður, Sigurður Þorvaldsson og Jón Torfa Arason sem varamenn.

 

6.2. Tilnefning varamanns D-listans í jafnréttisnefnd í stað Auðar Ásdísar   Jónsdóttur.
D-listinn tilnefnir Guðfinnu Diego Arnórsdóttur.

 

6.3. Tilnefning varamanns D-listans í atvinnumálanefnd í stað Kára P. Ólafssonar.
D-listinn tilnefnir Önnu Lísu Hassing.

6.4. Tilnefning varamanna L-listans í fræðslunefnd í stað Bylgju Mistar Gunnarsdóttur og Öldu Baldursdóttur.
L-listinn tilnefnir Alfreð Viktor Þórólfsson og Birnu Sævarsdóttur sem varamenn.

 

6.5. Tilnefning varamanns L-listans í umhverfisnefnd í stað Öldu Baldursdóttur.
L-listinn tilnefnir Þórunni Sigþórsdóttur sem varamann

 

7. Erindi til umsagnar.

7.1. Bréf Sýslumanns Snæfellinga, dags. 10.10.2007 varðandi endurnýjun rekstrarleyfis Fimm Fiska.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við endurnýjun á rekstrarleyfi Fimm Fiska. Ólafur Guðmundsson sat hjá vegna tengsla við embætti Sýslumanns Snæfellinga.
 

7.2. Bréf Sýslumanns Snæfellinga, dags. 26.10.2007 varðandi endurnýjun rekstrarleyfis Heimagistingar, Höfðagötu 1.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við endurnýjun á rekstrarleyfi Heimagistingar, Höfðagötu 1. 
Ólafur Guðmundsson sat hjá vegna tengsla við embætti Sýslumanns Snæfellinga.

 

7.3. Bréf Sýslumanns Snæfellinga, dags. 2.11.2007 varðandi endurnýjun rekstrarleyfis Heimagistingar Ölmu, Sundabakka 12.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við endurnýjun á rekstrarleyfi Heimagistingar Ölmu, Sundabakka 12. 
Ólafur Guðmundsson sat hjá vegna tengsla við embætti Sýslumanns Snæfellinga.

7.4. Bréf Guðna Gunnarssonar, dags. 29.10.2007 varðandi ósk um skoðun eða álit bæjarstjórna á Snæfellsnesi á því hvort bygging fjölnota íþrótta- og menningarhúss á Snæfellsnesi sé vænlegur kostur. 
Það er mat bæjarráðs að íþróttaaðstaða í Stykkishólmi sé með þeim hætti að ekki er þörf á að taka þátt í slíku verkefni.

 

8. Erindi til afgreiðslu.

8.1. Bréf Búnaðarsamtaka Vesturlands og Borgarbyggðar, dags. 17.10.2007 varðandi boð um þátttöku í samstarfsverkefni um þjóðlendumál.
Bæjarráð samþykkir að þjóðlendunefnd Héraðsnefndar Snæfellinga sjái um þetta samstarfsverkefni f.h. Stykkishólmsbæjar við Búnaðarsamstök Vesturlands og Borgarbyggð.

8.2. Greinargerð vegna mats á eignarnámsbótum vegna skerðingar á lóð Hafnargötu 1.
Greinargerð framlögð og samþykkt. Bæjarráð lítur svo á að bæjarstjóri hafi alltaf haft heimild til að gera það sem gera þarf, vegna yfirborðsfrágangs á miðbænum, samkvæmt deiliskipulagi og útboðslýsingu, þar meðtalið eignanám sem lokaúrræði við Hafnargötu 1, þar sem ekki náðust samningar við lóðahafa.

 

9. Samningar.

9.1. Kaupsamningur vegna Áskinn 2.
Kaupsamningur framlagður og samþykktur.

9.2. Drög að viðaukasamningi við Íslenska gámafélagið.
Drög að viðaukasamningi við Íslenska gámafélagið framlagður og samþykktur.

 

10. Önnur mál.

10.a. Bæjarstjóri gerði grein fyrir endurskoðun á heimasíðu Stykkishólmsbæjar.
Samþykkt að Anok sjái um útlitshönnun á heimasíðunni.
 

10.b. Tillaga frá Berglindi Axelsdóttur um hraðatakmarkanir
Ég undirrituð legg til að byggingarfulltrúa ásamt skipulags- og byggingarnefnd verði falið að koma með tillögur sem lúti að því að draga úr hraða í Tjarnarási.

Berglind Axelsdóttir

Samþykkt samhljóða.


Fundargerðin upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl. 18:42
Þór Örn Jónsson, bæjarritari.



Til baka
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré