Bæjarráð, fundur nr. 430
Dags. 22.11.2007
Bæjarráð Stykkishólms hélt fund fimmtudaginn 22. nóvember 2007 kl. 17:00 í Ráðhúsinu.
Mætt voru: Ólafur Guðmundsson, formaður
Gretar D. Pálsson
Berglind Axelsdóttir
Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri
Þór Örn Jónsson, bæjarritari.
Ólafur Guðmundsson setti fund og fól Erlu bæjarstjóra fundarstjórn.
1. Fundargerðir nefnda.
1.1. Stjórn Dvalarheimilis, dags. 07.11.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
1.2. Skipulags- og byggingarnefnd, dags. 13.11.2007.
Fundargerð framlögð.
Liður 1 Hjörleifur Sigurþórsson/ Brynjar Daníelsson f.h. eigenda Skólastígs nr. 12 sækja um að rífa húsið og byggja nýtt samkvæmt teikningum dags. 25.08.´07.
Nefndin telur grenndaráhrif sé óveruleg og leggur til að erindið verði samþykkt.
Bæjarráð samþykkt að vísa erindinu aftur til nefndar vegna nýrra gagna.
Liður 4 Skipavík ehf/ Sævar Harðarson sækir um að byggja parhús við Móholt nr. 6, 8, 10 og 12 samkvæmt teikningum frá Sigurjóni Jónssyni.
Erindi samþykkt að uppfylltum skilyrðum byggingarreglugerðar.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Liður 5 Skipavík ehf/ Sævar Harðarson sækir um að byggja einbýlishús við Hjallatanga nr. 3, samkvæmt teikningum frá Sigurjóni Jónssyni.
Erindi samþykkt að uppfylltum skilyrðum byggingarreglugerðar.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Liður 6 Ríkharður Hrafnkelsson f.h. stjórnar golfklúbbsins Mostra óskar eftir breytingu á aðkeyrslu til golfskála sbr. bréf og tillöguteikn. dags. 10.10.´07.
Erindi hafnað.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Liður 7 Ýsuheiði ehf / Gestur Hólm óskar eftir viðbótarlóð og að byggja viðbyggingu austan við Nesveg nr. 16.
Erindi hafnað þar sem ekki liggur fyrir deiliskipulag af svæðinu.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar. Samþykkt að hafnarsvæði Skipurvíkurhafnar verði deiliskipulagt.
Liður 8 Guðmundur Benjamínsson sækir um leyfi til að byggja lambahús á ræktunarsvæði Nýræktarfélagsins sbr. teikn frá Verkfræðistofu E.K.
Nefndin leggur til að veitt verði tímabundið leyfi þar til skipulag á nýræktarsvæði hefur verið endurskoðað.
Bæjarráð samþykkir stöðuleyfi til eins árs.
Liður 9 f.h. slökkviliðs Stykkishólmsbæjar / Þorbergur Bæringsson óskar eftir að staðsetja tvo 20 feta gáma í bæjarlandi til æfinga fyrir reykköfun. Nefndin leggur til að veitt verði bráðabirgðaleyfi fyrir að staðsetja gáma í norðvestur af svæði A3 / við Ögursafleggjara á aðalskipulagi.
Bæjarráð samþykkir stöðuleyfi til eins árs.
Liður 10 Stefán Björgvinsson Árnatúni 6 óskar eftir að klæða hús með bárustáli eins og er á bílskúr.
Erindi samþykkt.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Liður 12 lagðar fram teikningar af breytingum á gluggum að framanverðu á bókasafni við Hafnargötu 7
Erindi samþykkt.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Liður 13 Guðbrandur Björgvinsson sækir um að loka vegg á milli aðalsalar og vesturenda hússins við Hamraenda nr. 5 , sbr. bréf dags. 9.11.´07.
Erindi samþykkt. Lokun á vegg skal vera í samræmi við byggingarreglugerð.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Liður 14 BB og synir óska eftir leyfi fyrir að ganga frá lóð við Reitarveg 16, sbr. tillöguteikningu.
Nefndin heimilar frágang lóðar. Mælst er til að gengið sé snyrtilega frá bakka án landfyllingar við Landeyjarsund.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar, þess er krafist að fyrirstaða af grjóti verði sett við sjólínu til að styðja við jarðveg utan á skel. Bæjarráð fagnar framtaki BB og sona við lóðarframkvæmd.
Liður 15 byggingarfulltrúi og skipulags- og byggingarnefnd eru beðin um að koma með tillögur sem lúta að því að draga úr umferðarhraða í Tjarnarási. Erindi var vísað til nefndarinnar af bæjarráði á bæjarráðsfundi.
Nefndin leggur til að settur verði upp umferðargreinir við Tjarnarás.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar, bókun verði breytt, þannig að erindinu hafi verið vísað til nefndarinnar af bæjarráði.
Fundargerð samþykkt.
1.3. Þjónustuhópur aldraðra, dags. 15.11.2007.
Félagslega eignaíbúðakerfið var lagt niður 1998. Enn er lánað til þjónustuíbúða aldraðra á sömu kjörum og á hinum almenna markaði.
Fundargerð framlögð
Liður 1 samþykktur með gerðum breytingum. Fundargerð samþykkt.
2. Erindi til kynningar.
2.1. Bréf stjórnar UMFÍ, dags. 14.11.2007.
Bréf stjórnar UMFÍ framlagt.
2.2. Bréf Félagsmálaráðuneytis, dags. 01.11.2007 varðandi athugasemdir Heimis Laxdal Jóhannessonar vegna umsagnar Stykkishólmsbæjar, dags. 17. september sl., vegna kæru hans frá 10. ágúst sl.
Bréf Félagsmálaráðuneytis framlagt.
3. Lóðarumsóknir.
3.1. Eggert Halldórsson skilar inn lóð við Hjallatanga nr. 38, dags. 07.11.2007.
Staðfest að taka við lóðinni.
3.2. Egill Egilsson sækir um lóð við Hjallatanga nr. 38, dags. 07.11.2007.
Samþykkt að Egill Egilsson fái lóðina við Hjallatanga nr. 38.
3.3. Jon Nordsteien sækir um stækkun lóðar við Reitarveg 6A f.h. eiganda og tillögu að nýbyggingu, dags. 02.11.2007.
Stækkun lóðar við Reitarveg 6A hafnað, þar sem ekki er hægt að tryggja að framtíðarskipulag geri ráð fyrir aðkomu að bátaskýli.
4. Erindi til afgreiðslu.
4.1. Bréf frá árshátíðarnefnd 2007, dags. 07.11.2007.
Samþykkt að fela bæjarstjóra að koma með tillögu að fyrirkomulagi árshátíðar.
4.2. Bréf foreldraráðs Grunnskólans í Stykkishólmi, dags. 08.11.2007 varðandi mötuneyti við Grunnskóla Stykkishólms.
Samþykkt að hafna niðurgreiðslu máltíða við Grunnskólann í Stykkishólmi, með tveimur atkvæðum gegn einu.
4.3. Bréf Sambands Íslenskra sveitafélaga, dags. 06.11.2007 varðandi verkfallslista fyrir 1. febrúar 2008.
Samþykkt að vísa erindinu til bæjarstjórnar.
4.4. Starfslýsing umsjónarmanns fasteigna.
Starfslýsing umsjónarmanns fasteigna framlögð og samþykkt.
5. Reglur og samþykktir.
5.1. Reglur um úthlutun á lóðum fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði- drög að breytingum.
Reglur um úthlutun á lóðum fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði hjá Stykkishólmsbæ samþykktar.
5.2. Drög að samþykkt um gatnagerðagjöld.
Drögum að samþykkt um gatnagerðagjöld vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
6. Tilboð.
6.1. Tilboð í gatnagerð og lagnir við Móholt. Frá bæjarráðsfundi nr. 429.
Samþykkt að bæjarstjóri gangi til samninga við BB og syni ehf., sem voru með næst lægsta tilboðið.
7. Styrkbeiðnir.
7.1. Bréf Önnu Jóhannesdóttur, dýralæknis, dags. 08.11.2007 varðandi stofnfé í Sjálfseignarstofnun um einstaklingsmerkingar gæludýra.
Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við styrkbeiðninni.
7.2. Bréf Ástu S. Kristjánsdóttur, verkefnisstjóra Snorraverkefnis, dags. 09.11.2007. varðandi stuðning við Snorraverkefnið sumarið 2008.
Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við styrkbeiðninni.
8. Fjármál.
8.1. Reglur um afslátt af fasteignaskatti hjá Stykkishólmsbæ.
Reglur um afslátt af fasteignaskatti hjá Stykkishólmsbæ samþykktar.
8.2. Tillaga bæjarstjóra að álagningarreglum fyrir árið 2008.
Bæjarstjóri lagði fram eftirfarandi tillögu:
Tillaga um að útsvar fyrir árið 2008 verði óbreytt miðað við fyrra ár þ.e. 13.03%.
Tillaga að álagningu fasteignagjalda árið 2008.
Fasteignaskattur A-flokkur 0,43%
Fasteignaskattur B-flokkur 1,32%
Fasteignaskattur C-flokkur 1,65%
Lóðaleiga íbúðarhúsnæðis 2,00%
Lóðarleiga atvinnuhúsnæðis 2,50%
Lóðarleiga ræktunarland 6,00%
Holræsagjald íbúðarhúsnæði 0,22%
Holræsagjald atvinnuhúsnæði 0,22%
Sorphirðu- og sorpeyðingargjöld pr. íbúð 25.000 kr.
Staðgreiðsluafsláttur 3% til þeirra sem greiða fyrir 1. mars 2008 öll fasteignagjöld og eru skuldlausir við bæjarsjóð og fyrirtæki bæjarins.
Sorphirðu og/eða sorpeyðingagjöld af fyrirtækjum verði innheimt skv. sérstakri gjaldskrá.
Elli- og örorkulífeyrisþegar:
Afsláttur á fasteignaskatti til örorku- og ellilífeyrisþega er tekjutengdur og er hámarksafsláttur kr. 50.000.-
Afsláttur vegna einstaklinga:
Tekjumörk: Afsláttur:
1.625.000.- 100%
1.820.000.- 75%
2.000.000.- 50%
2.195.000.- 25%
2.380.000.- 0%
Afsláttur vegna hjóna:
Tekjumörk: Afsláttur:
2.884.000.- 100%
3.075.000.- 75%
3.258.000.- 50%
3.451.000.- 25%
3.628.000.- 0%
Gjalddagar fasteignagjalda verða 5 talsins á tveggja mánaða fresti þ.e. febrúar, apríl, júní, ágúst, október, fyrst 1. febrúar 2008.
Tillaga að álagningarreglum fasteignagjalda og útsvars Stykkishólmsbæjar fyrir árið 2008 samþykktar.
8.3. Drög að fjárhagsáætlun Stykkishólmsbæjar fyrir árið 2008.
Þór Örn bæjarritari gerði grein fyrir fyrstu drögum að fjárhagsáætlun Stykkishólmsbæjar fyrir árið 2008. Samþykkt að vísa drögum að fjárhagsáætlun Stykkishólmsbæjar fyrir árið 2008 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
9. Tillögur.
9.1. Tillaga Ólafs Guðmundssonar og Gretars D. Pálssonar.
Með það að markmiði að auka umferðaröryggi og tryggja eða auka líkur á að farið verði að hraðatakmörkunum, leggja undirritaðir til að í samráði við Vegagerðina og lögreglu verði vegkaflinn frá Vogsbotni og inn í bæinn tekinn til sérstakrar endurskoðunar með tilliti til umferðarhraða, merkinga og umferðarmannvirkja.
Gretar D. Pálsson
Ólafur Guðmundsson
Samþykkt samhljóða.
9.2. Tillaga Berglindar Axelsdóttur.
Tillaga til Bæjarráðs Stykkishólms
Undirrituð leggur það til að Skipulags- og byggingarnefnd og Umhverfisnefnd fundi saman reglulega. Lagt er til að nefndarmenn komi sér saman um tíðni funda og fyrirkomulag. Formaður Skipulags- og bygginganefndar boði til fyrsta fundar.
Berglind Axelsdóttir
Tillaga felld á jöfnum atkvæðum. Gretar sat hjá.
Undirritaður telur sjálfsagt og eðlilegt að nefndir vinni saman þegar verkefni þeirra skarast.
Gretar D. Pálsson
10. Önnur mál.
10.1 Minnispunktar vegna samnings við Skipavík um Víkurhverfi.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir minnispunktum vegna samnings við Skipavík um Víkurhverfið.
10.2 Bókun vegna fundargerða fræðslunefndar.
Undirrituð fagnar því að fundargerðir fræðslunefndar eru ítarlegri en þær hafa verið því nú eru ekki einungis spurningarnar bókaðar heldur og einnig svörin. Það er von mín að áframhald verði á þessu fyrir komulagi.
Berglind Axelsdóttir
Fundargerðin upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl. 20:06
Þór Örn Jónsson, bæjarritari.
Til baka