Bæjarráð, fundur nr. 431
Dags. 13.12.2007
Bæjarráð Stykkishólms hélt fund fimmtudaginn 13. desember 2007 kl. 19:23 í Ráðhúsinu.
Mætt voru: Ólafur Guðmundsson, formaður
Gretar D. Pálsson
Berglind Axelsdóttir
Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri
Þór Örn Jónsson, bæjarritari.
Ólafur Guðmundsson setti fund og fól Erlu bæjarstjóra fundarstjórn.
1. Fundargerðir nefnda.
1.1. Umhverfisnefnd, dags. 26.11.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
1.2. Skólanefnd Tónlistarskóla Stykkishólms, dags. 28.11.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
1.3. Stjórn Dvalarheimilis, dags. 04.12.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
1.4. Fræðslunefnd, dags. 10.12.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
1.5. Skipulags- og byggingarnefnd, dags. 11.12.2007.
Fundargerð framlögð.
Liður 1 Skólastígur 12 íbúðarhúsnæði.
Bæjarráð vísaði erindi til skipulags- og bygginganefndar þ. 22. nóvember s.l. vegna athugasemda frá tveimur aðilum sem bárust innan tilskilins auglýsingafrests en voru ekki lagðar fyrir skipulags- og byggingarnefndina. Athugasemdirnar eru frá Hergard Jensen Skólastíg nr. 10, dags. 29. 10.2007 , og Birni Jóhanni Guðmundssyni, tölvupóstur dags. 17.08.2007 , sendur þ. 6. 11. 2007.
Nefndin fellur frá fyrri afgreiðslu í ljósi framkominna athugasemda. Erindi er vísað í yfirstandandi deiliskipulagsvinnu af svæðinu.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Liður 2 Hjallatangi 38, einbýlishús.
Skipavík ehf. óskar eftir f.h. lóðarhafa að byggja einbýlishús á lóð nr. 38 við Hjallatanga. Stærðir: 146,4 m2, 556,0 m3.
Samþykkt.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Liður 5 flokkunarsvæði við gámastöðina Snoppu.
Stefán Eyfjörð Stefánsson f.h. Íslenska Gámafélagsins ehf. óskar eftir að staðsetja flokkunarstöð á sorpi norðan við gámastöðina Snoppu fyrir geymslugáma, tjaldskýli og jarðgerðargám sbr. bréf og teikningar dags. 4.12.2007.
Erindi samþykkt að uppfylltum skilyrðum.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Liður 7 Nesvegur 14, færsla á gluggum.
F.h. Tinds ehf. Páll Guðmundsson óskar eftir leyfi til að færa glugga á skemmu við Nesveg 14 sbr. bréf dags. 10.12. 2007.
Samþykkt.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Liður 9 Skipulagsvinna tjaldsvæðis .
Skipulags- og byggingarfulltrúi greindi frá að nauðsyn væri að endurskoða skipulag tjaldsvæðis í heild sinni, m.a. vegna nýrrar aðkomu inn á svæðið, legu vegar og þörfina fyrir nýju þjónustuhúsi.
Nefndin leggur til að lokið verði við skipulag af svæðinu.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Fundargerð samþykkt.
1.6. Atvinnumálanefnd, dags. 11.12.2007.
Fundargerð framlögð, liður 1 tillaga um hljóðleiðsögn samþykkt og tillaga um styrkumsókn til ferðamálaráðs vegna tjaldsvæðis samþykkt. Fundargerð samþykkt.
2. Aðrar fundargerðir.
2.1. Stjórn Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga, dags. 28.11.2007.
Fundargerð framlögð.
2.2. 83. fundur Breiðafjarðarnefndar, dags. 05.11.2007. (www.breidarfjordur.is)
Fundargerð framlögð.
3. Erindi til kynningar.
3.1. Fréttatilkynning Þjóðhátíðarsjóðs, dags. 01.12.2007 varðandi styrkveitingar Þjóðhátíðarsjóðs vegna ársins 2008.
Fréttatilkynning Þjóðhátíðarsjóðs framlögð.
3.2. Bréf Lánasjóðs sveitarfélaga, dags. 28.11.2007 varðandi fasteignafélag sveitarfélaga.
bréf Lánasjóðs sveitarfélaga framlagt.
3.3. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, dags. 03.12.2007 varðandi reglugerð um lögreglusamþykkt.
Bréf Dóms- og kirkjumálaráðuneytið framlagt.
3.4. Samningur við Kaupþing um gjaldfrjálsan aðgang á kostnað Kaupþings að Sundlaug Stykkishólmsbæjar fyrir handhafa greiðslukorts fyrir ungt fólk.
Samningur við Kaupþing framlagður.
3.5. Bréf Skipulagsstofnunar og Umhverfisstofnunar, dags. 07.12.2007 varðandi námur, framkvæmdaleyfi og mat á umhverfisáhrifum.
Bréf Skipulagsstofnunar og Umhverfisstofnunar framlögð.
4. Erindi til afgreiðslu.
4.1. Bréf Siglingastofnunar Íslands, dags. 01.12.2007 varðandi úttekt á slysavörnum í höfnum.
Erindi vísað til hafnarstjórnar.
4.2. Stofnsamningur Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga-drög.
Stofnsamningur Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga samþykktur.
4.3. Bréf Magnúsar V. Vésteinssonar, dags. 20.11.2007 varðandi beiðni um samþykki á landamerkjum Hóla og Vatnsdals.
Bæjaráð gerir ekki athugasemdir við landamerki milli Hóla og svæðis í eigu Stykkishólmsbæjar við Vatndalsvatn.
4.4. Tilboð Eldstoða í eldvarnareftirlit í Stykkishólmi.
Tilboði vísað til næsta bæjarstjórnar.
4.5. Sameiginleg tillaga bæjarstjóra bæjarfélaga á Snæfellsnesi um stuðning við nemendafélag FSN. Frá bæjarráðsfundi nr. 429.
Samþykkt samhljóða að bæjarfélögin á Snæfellsnesi styrki nemendafélag FSN sem nemur einni rútuferð í mánuði til eflingar félagslífs nemenda. Þó að hámarki um 400.000 kr. fyrir skólaárið. Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga greiðir nemendafélaginu styrkinn gegn framvísun reiknings fyrir rútuferðum. Félags- og skólaþjónustan innheimtir reikninginn hjá sveitarfélögunum skv. reiknireglu Félags- og skólaþjónustunnar.
5. Erindi til umsagnar.
5.1. Bréf Sýslumanns Snæfellinga, dags. 22.11.2007 varðandi nýtt rekstrarleyfi Hótels Breiðafjarðar.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við endurnýjun á rekstrarleyfi Hótels Breiðafjarðar. Ólafur Guðmundsson sat hjá vegna tengsla við embætti Sýslumanns Snæfellinga.
6. Samningar.
6.1. Verksamningur milli Stykkishólmsbæjar og BB & sona ehf., dags. 12.12.2007 um gatnagerð og lagnir við Móholt.
Verksamningur milli Stykkishólmsbæjar og BB & sona ehf. framlagður og samþykktur.
7. Reglur og samþykktir.
7.1. Drög að samþykkt um gatnagerðagjöld – seinni umræða.
Samþykkt að vísa drögum að samþykktum um gatnagerð til síðari umræðu í bæjarstjórn með áornum breytingum.
8. Kæra
8.1. Sjávarútvegsráðuneyti, dags. 27.11.2007 varðandi stjórnsýslukæru frá Páli Guðmundssyni f.h. Tinds ehf.
Bréf Sjávarútvegsráðuneytis framlagt.
8.2. Umsögn Stykkishólmsbæjar, dags. 11.12.2007 varðandi stjórnsýslukæru frá Páli Guðmundssyni f.h. Tinds ehf.
Umsögn Stykkishólmsbæjar samþykkt með tveimur atkvæðum gegn einu.
9. Fjármál.
9.1. Fjárhagsáætlun Félags- og skólaþjónustu Snæfellsness fyrir árið 2008.
Fjárhagsáætlun Félags- og skólaþjónustu Snæfellsness fyrir árið 2008 samþykkt.
9.2. Drög að fjárhagsáætlun Stykkishólmsbæjar fyrir árið 2008 - síðari umræða.
Samþykkt að vísa drögum að fjárhagsáætlun Stykkishólmsbæjar fyrir árið 2008 til síðari umræðu í bæjarstjórn.
9.3. Drög að þriggja ára fjárhagsáætlun Stykkishólmsbæjar, 2009-2011, fyrri umræða.
Samþykkt að vísa drögum að þriggja ára fjárhagsáætlun Stykkishólmsbæjar fyrir árið 2009-2011 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
10. Önnur mál.
Fundargerðin upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl. 21:00
Þór Örn Jónsson, bæjarritari.
Til baka