Bæjarráð, fundur nr. 433
Dags. 14.2.2008
Bæjarráð Stykkishólms hélt fund fimmtudaginn 14. febrúar 2008 kl. 17:00 í Ráðhúsinu.
Mætt voru:
Ólafur Guðmundsson, formaður
Gretar D. Pálsson
Elísabet Lára Björgvinsdóttir, varamaður undir lið 30.
Berglind Axelsdóttir
Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri
Arna Sædal Andrésdóttir, ritari.
Ólafur Guðmundsson setti fund og fól Erlu bæjarstjóra fundarstjórn.
Bæjarstjóri lagði fram breytingu á dagskrá. Samþykkt var að gera breytingu á dagskrá. Byrjað var á lið nr. 30.
Fundargerðir nefnda
1. 0802015 - Fundargerð skólanefndar Tónlistarskóla Stykkishólms, dags. 06.02.2008 (122. fundur).
Fundargerð framlögð og samþykkt.
2. 0802011 - Fundargerð stjórnar Dvalarheimilis, dags. 06.02.2008 (23. fundur).
Fundargerð framlögð og samþykkt.
3. 0802005 - Fundargerð umhverfisnefndar, dags. 04.02.2008 (13. fundur).
Fundargerð framlögð og samþykkt.
4. 0801040 - Fundargerð fræðslunefndar, dags. 21.01.2008 (88. fundur).
Fundargerð framlögð og samþykkt.
5. 0802004 - Fundargerð fræðslunefndar, dags. 04.02.2008 (89. fundur).
Fundargerð framlögð og samþykkt.
6. 0801046 - Fundargerð safna- og menningarmálanefndar, dags. 29.01.2008 (65. fundur).
Bæjarráð fagnar auknum útlánum hjá Amtsbókasafninu.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
Erindi til kynningar
7. 0802024 - Bréf Upplifðu allt hópsins (All Senses Group) varðandi borgarafund 16. feb. n.k., dags. febrúar 2008.
Bréf upplifðu allt hópsins framlagt.
8. 0802023 - Bréf Sambands íslenskra sveitarfélga varðandi stefnumótun í málefnum innflytjenda, dags. 05.02.2008.
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga framlagt.
9. 0802022 - Bréf Samtaka iðnaðarins varðandi ný lög um opinber innkaup og áhrif þeirra á innkaup sveitarfélaga, dags. 07.02.2008.
Bréf Samtaka iðnaðarins framlagt.
10. 0802019 - Bréf Sjúkraliðafélags Íslands varðandi auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda, dags. 07.02.2008.
Bréf Sjúkraliðafélags Íslands framlagt.
11. 0802012 - Bréf Landgræðslu ríkisins varðandi kynningu á verkefninu Héraðsáætlanir Landgræðslunnar, dags. 04.02.2008.
Bréf Landgræðslu ríkisins framlagt.
12. 0802009 - Þakkarbréf Aftanskins félags eldri borgara í Stykkishólmi, dags. 29.01.2008.
Þakkarbréf Aftanskins félags eldri borgara í Stykkishólmi framlagt.
13. 0801036 - Bréf frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna, dags. 04.01.2008 og Hafnarsambandi Íslands, dags. 14.01.2008 varðandi gjaldskrár hafna.
Bréf Landssambands íslenskra útvegsmanna og Hafnarsambands Íslands framlögð.
14. 0802003 - Afrit af bréfi Landssambands íslenskra útvegsmanna varðandi gjaldskrármál hafna, dags. 29.01.2008.
Afrit af bréfi Landssambands íslenskra útvegsmanna framlagt.
15. 0801048 - Golfklúbburinn Mostri Stykkishólmi, ársskýrsla 2007.
Ársskýrsla Golfklúbbsins Mostra Stykkishólmi framlögð.
16. 0801045 - Afrit af bréfi frá Búnaðarsamtökum Vesturlands varðandi búfjáreftirlitsferð í Sellátur, dags. 08.01.2008.
Afrit af bréfi frá Búnaðarsamtökum Vesturlands framlagt.
17. 0801042 - Bréf umboðsmanns Alþingis: Mál nr. 5225/2008, dags. 23.01.2008 og 01.02.2008.
Bréf umboðsmanns Alþingis framlagt.
18. 0801039 - Bréf Landsskrifstofu Staðardagskrár 21 á Íslandi varðandi Ólafsvíkuryfirlýsingu, dags. 18.01.2008.
Bréf Landsskrifstofu Staðardagskrár 21 á Íslandi framlagt.
19. 0801034 - Bréf og auglýsing Ungmennafélags Íslands um undirbúning og framkvæmd 13. Unglingalandsmóts UMFÍ árið 2010, dags. 15.01.2008.
Bréf og auglýsing Ungmennafélags Íslands framlögð.
20. 0712004 - Stjórnsýslukæra frá Páli Guðmundssyni f.h. Tinds ehf. – úrskurður.
Úrskurður Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis framlagður.
Erindi til umsagnar
21. 0801038 - Bréf Samgöngunefndar Alþingis varðandi frumvarp til laga um samgönguáætlun, dags. 17.01.2008. (http://www.althingi.is/altext/135/s/0332.html)
Bréf Samgöngunefndar framlagt. Bæjarráð gerir engar athugasemdir við frumvarp til laga um samgönguáætlun.
Erindi til afgreiðslu
22. 0802021 - Minnisblað VST um fráveitukerfi í Víkurhverfi, samanburður á einföldu og tvöföldu kerfi, dags. 04.02.2008.
Samþykkt að lagt verði einfalt fráveitukerfi í Víkurhverfi.
23. 0802020 - Bréf frá SSV varðandi tilnefningu á frumkvöðli Vesturlands 2007, dags. 07.02.2008.
Samþykkt að fresta erindi til næsta bæjarráðsfundar.
24. 0802017 - Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi XXII. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 06.02.2008.
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga framlagt. Kjörnir fulltrúar eru Erla Friðriksdóttir og Lárus Ástmar Hannesson. Til vara Gretar D. Pálsson og Berglind Axelsdóttir.
25. 0802013 - Bréf Vinnueftirlits ríkisins, Vesturlandsumdæmis varðandi öryggistrúnaðarmenn, öryggisverði og öryggisnefndir, dags. 05.02.2008.
Samþykkt að fresta erindi til næsta bæjarráðsfundar.
26. 0802006 - Bréf Byggðastofnunar varðandi styrk vegna verkefnisins „Heilsuefling í Stykkishólmi“, dags. 30.01.2008.
Samþykkt að óska eftir fresti til að skila inn lokaskýrslu um verkefnið til 1. júlí 2008.
27. 0802001 - Bréf Siglingastofnunar varðandi fjögurra ára samgönguáætlun 2009-2012, dags. 31.01.2008.
Samþykkt að vísa erindi Siglingastofnunar til hafnarstjórnar.
28. 0801043 - Bréf Sorpurðunar Vesturlands varðandi bókun vegna tillögu verkefnisstjórnar sorpsamlaganna á suðvesturlandi um framtíðarlausnir í úrgangsmálum, dags. 22.01.2008.
Bæjarráð er ekki tilbúið að stafesta erindið.
29. 0801031 - Bréf Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga vegna bókunar Félagsmálanefndar Snæfellinga um jafnréttismálefni, dags. 16.01.2008.
Bréf Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga framlagt.
30. 0802026 - Umsóknir um starf umsjónarmanns fasteigna.
Bæjarstjóri lagði fram eftirfarandi tillögu:
Skv. gr. 62 samþykktar um stjórn og fundarsköp Stykkishólmsbæjar kemur fram að ef stofnuð er ný staða (fast starf) skal bæjarstjórn ákveða hvort um ráðningu í starfið fer skv. 61. gr. eða 62. gr.
Þar sem um nýja stöðu er að ræða sem heyrir beint undir bæjarstjóra leggur bæjarstjóri til að farið verði að gr. 61 þ.e. að bæjarstjórn ráði í starfið.
Samþykkt samhljóða.
Umsækjendur:
Andrés Kristjánsson
Árni Bjarki Kristjánsson
Bergur J. Hjaltalín
Björn Benediktsson
Eggert Sigurðsson
Guðmundur Kristinsson
Jónas Steinþórsson
Kristján J. Kristjánsson
Kristján Berntsson
Oddur Hrannar Oddsson
Sigurður Ág. Kristjánsson
Þorsteinn Kúld
Þorvaldur Pálsson
Bókun varðandi umsóknir um stöðu umsjónarmanns fasteigna.
Undirritaður fagnar því hversu margir sóttu um stöðu umsjónarmanns fasteigna Stykkishólmsbæjar. Það gerir val á umsækjendum erfiðara hversu margir hæfir eru þar á meðal með tilliti til menntunar og reynslu. Valið þarf að vera hlutlægt við mat á menntun og reynslu sem nýtist við starf umsjónarmanns fasteigna og ekki síður huglægt hvað varðar þá mannkosti sem nýtast í starfinu.
Undirritaður mun víkja sæti fyrir varamanni við umfjöllun og afgreiðslur er tengjast ráðningu umsjónarmanns fasteigna, vegna tengsla og vináttu við hluta umsækjenda.
Gretar D. Pálsson
Gretar vék af fundi og Elísabet Lára kom í hans stað.
Samþykkt að bæjarstjóra verði falið að koma með tillögu að ráðningu að umsjónarmanni fasteigna á næsta bæjarráðsfund.
Elísabet Lára vék af fundi og Gretar kom í hennar stað.
Styrkbeiðnir
31. 0802016 - Bréf Golfklúbbsins Mostra varðandi niðurfellingu á fasteignagjöldum fyrir árið 2008, dags. 05.02.2008.
Samþykkt að veita Golfklúbbnum Mostra styrk sem nemur fasteignagjöldum golfskálans á Aðalgötu 29 og ræktunarlands árið 2008. Golfklúbbnum Mostra er bent á Orkuveitu Reykjavíkur varðandi niðurfellingu á vatnsgjaldi.
32. 0801037 - Bréf Kvenfélagsins Hringsins varðandi niðurfellingu fasteignagjalda, dags. jan. 2008.
Samþykkt að veita Kvenfélaginu Hringnum styrk sem nemur fasteignagjöldum á Aðalgötu 24 árið 2008. Kvenfélaginu Hringnum er bent á Orkuveitu Reykjavíkur varðandi niðurfellingu á vatnsgjaldi.
33. 0802025 - Bréf Starfsmannafélags Leikskólans í Stykkishólmi varðandi styrk til námsferðar, dags. 07.02.2008.
Bæjarráð samþykkir að veittur sér 100.000 kr. styrkur til námsferðar til Svíþjóðar. Bæjrráð fer fram á að skýrsla um ferðina verði lögð fram að ferð lokinni.
Tillögur
34. 0801047 - Bæjarstjóri leggur til að hafin verði gatnahönnun við Höfðagötu í samræmi við fjárhagsáætlun 2008.
Saþykkt samhljóða.
35. Önnur mál
Tillaga frá Berglindi Axelsdóttur um breytingar á deiliskipulagi.
Ég undirrituð legg til að lóðin Sundabakki 6 verði tekin út af deiliskipulagi og breytt í opið svæði.
Greinargerð:
Lóðin þar sem heitir Sundabakki 6 er erfið byggingarlóð og þar er nú þegar góð aðstaða til útivistar. Það eru ekki svipuð aðstaða í næsta nágrenni og er því kjörið tækifæri að hafa svæðið í óbreyttri mynd.
Berglind Axelsdóttir
Bæjarráð samþykkir að tillögunni verði vísað til skipulags- og byggingarnefndar til umsagnar.
Fundargerðin upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl. 18:30.
Arna Sædal Andrésdóttir, ritari.
Til baka