Bæjarráð, fundur nr. 442

Dags. 16.10.2008

442. fundur haldinn í bæjarráðssal,

fimmtudaginn 16. október 2008 og hófst hann kl. 17.00

 

Fundinn sátu:Ólafur Guðmundsson, formaður, Elísabet Lára Björgvinsdóttir, Davíð Sveinsson, Erla Friðriksdóttir bæjarstjóri og Þór Örn Jónsson bæjarritari.

 

Fundargerð ritaði: Þór Örn Jónsson.

 

Ólafur Guðmundsson setti fund og fól Erlu bæjarstjóra fundarstjórn.

 

Fundargerðir nefnda.

 

1. 0810014 - Fundargerð fræðslunefndar, dags. 08.10.2008 (93. fundur) og 0809010 - fundargerð fræðslunefndar, dags. 10.09.2008 (92. fundur).

Fundargerðir framlagðar og samþykktar.

2. 0810013 - Fundargerð skólanefndar Tónlistarskóla Stykkishólms, dags. 07.10.2008 (126. fundur).

Fundargerð framlögð og samþykkt.

3. 0810012 - Fundargerð skipulags- og byggingarnefndar, dags. 07.10.2008 (111. fundur).

Fundargerð framlögð.

Liður 1 Aðalgata 17. Lóðarstækkun og tillöguteikning að byggingu og fyrirkomulag á lóð.

Hafsteinn Guðmundsson sækir um  f.h. Kaupþings banka kt. 560882-0419,  að stækka lóð Aðalgötu 17, sbr. bréf . dags. 30.07.2008. Einnig eru  lagðar fram   tillöguteikningar að bankabyggingu frá T.ark dags.10. 2008.  Erindi vísað af bæjarráðsfundi til skipulags- og byggingarnefndar.

Nefndin tekur jákvætt í erindið. Breyta þarf deiliskipulagi í samræmi við tillögu. Samþykkt með þremur atkvæðum gegn tveimur.

Björgvin greiddi atkvæði gegn breytingu á deiliskipulagi. Hann telur að ekki sé ástæða til að stækka lóð fyrir 338 m2 hús. Guðmundur sat hjá.

 

Afgreiðsla nefndarinnar samþykkt.

 

Liður 2 Reitarvegur 6, viðbygging.

Þorbjörn Geir Ólafsson kt. 300575-5369 sækir  um eftirfarandi breytingar á Reitarvegi nr. 6.a) Að byggja um 25 m2 viðbyggingu við aðalhús. b) Að setja hurð á austurgafl og glugga á vesturgafl geymslu sbr. teikningar dags.15.05.2008. Stærðir 25,3 m2. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 7. mgr. 43. gr. laga nr. 73/1997 fyrir eigendum húsa við Reitarveg nr. 2, 4 og 4a og lóðarhafa við Reitarveg nr. 6a. Athugasemd barst frá Baldri Úlfarssyni Reitarvegi 2 og Eddu Baldursdóttur lóðarhafa við Reitarveg nr. 6a.

Nefndin leggur til að samþykkja viðbyggingu við íbúðarhús svo og breytingar á gluggum og hurð á geymsluskúr. Við endurbætur á  geymsluskúr verði veggur sem snýr að lóðarmörkum Reitarvegar nr.  6a, endurbyggður í samræmi við reglugerðir um brunavarnir bygginga sbr. 156. gr. byggingarreglugerðar nr. 441/1998.

 

Afgreiðsla nefndarinnar samþykkt.

 

Liður 3 Reitarvegur 3. Stöðuleyfi fyrir gáma.

Stykki hf. kt. 590293 2299 / Páll Aðalsteinsson óskar eftir stöðuleyfi fyrir tvo gáma á lóð við Reitarveg nr. 3 sbr. bréf dags. 30.07.2008. Skriflegt samþykki meðlóðarhafa liggur fyrir dags. 31.08.2008.

Nefndin samþykkir að veita stöðuleyfi á gámum á lóð í eitt ár í senn.

 

Afgreiðsla nefndarinnar samþykkt.

 

Liður 4 Sundabakki 14. Endurnýjun á tröppum.

Guðmundur Óskarsson sækir um að endurbyggja tröppur utandyra við húsið að Sundabakka 14, sbr. teikningu dags. september 2008.

Erindi samþykkt.

 

Afgreiðsla nefndarinnar samþykkt.

 

Liður 5 Hamraendi 5. Milliloft.

Útgerð Arnars ehf. kt. 630589 1269/ Guðbrandur Björgvinsson sækir um milliloft á geymsluhúsnæði og að setja 2 glugga á gafl hússins sbr. teikn. frá Verkfræðistofu E.K. dags. sept. 2008. Skriflegt samþykki meðlóðarhafa liggur fyrir.

Erindi samþykkt.  

 

Björgvin sat hjá vegna tengsla við 5. lið.

 

Afgreiðsla nefndarinnar samþykkt.

 

Liður 6 Reitarvegur 3. Viðbygging.

Útgerðarfélagið Engey ehf /Óskar Eyþórsson sækir um leyfi til að byggja við mhl. 010103, sbr. teikningu frá Verkfræðistofu EK mótt. 6.10. 2008. Stærðir: 73,75 m2    m3.

Erindi samþykkt með fyrirvara á að skriflegt samþykki  meðeigenda liggi  fyrir.

 

Afgreiðsla nefndarinnar samþykkt.

 

Fundargerð samþykkt.

 

4. 0810011 - Fundargerð stjórnar Dvalarheimilis, dags. 07.10.2008 (28. fundur) og 0809023 - fundargerð stjórnar Dvalarheimilis, dags. 09.09.2008 (27. fundur).

Fundargerðir framlagðar og samþykktar.

5. 0809039 - Fundargerð safna- og menningarmálanefndar, dags. 30.09.2008 (68. fundur).

Fundargerð framlögð og samþykkt.

6. 0809038 - Fundargerð umhverfisnefndar, dags. 29.09.2008 (19. fundur).

Fundargerð framlögð og samþykkt.

7. 0809037 - Fundargerð æskulýðs- og íþróttanefndar, dags. 29.09.2008 (29. fundur).

Fundargerð framlögð og samþykkt.

8. 0809011 - Fundargerð þjónustuhóps aldraðra, dags. 11.09.2008 (54. fundur).

Fundargerð framlögð og samþykkt.

 

Aðrar fundargerðir.

 

9. 0810017 - Fundargerð Breiðafjarðarnefndar, dags. 09.10.2008 (91. fundur), (www.breidafjordur.is).

Fundargerð framlögð.

10. 0809033 - Fundargerð Breiðafjarðarnefndar, dags. 22.09.2008 (90. fundur), (www.breidafjordur.is).

Fundargerð framlögð.

 

Erindi til kynningar.

 

11. 0810025 - Tölvupóstur Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi samráðsfund sveitarfélaga um ástandið í efnahagsmálum á Grand hótel 17.10.2008.

Framlagt.

12. 0810015 - Bréf EBÍ dags. 07.10.2008 varðandi úthlutun úr styrktarsjóði EBÍ.

Framlagt.

13. 0810008 - Bréf EBÍ, dags. 02.10.2008 varðandi ágóðahlutagreiðslu 2008.

Framlagt.

14. 0809036 - Bréf menntamálaráðuneytis, dags. 23.09.2008 varðandi framkvæmd samræmdra könnunarprófa í 10. bekk.

Framlagt og erindinu vísað til fræðslunefndar.

15. 0810004 - Bréf Breiðafjarðarnefndar, dags. 22.09.2008 varðandi minnisblað um styrkingu á vernd Breiðafjarðar.

Framlagt.

16. 0809035 - Bréf samgönguráðuneytis, dags. 22.09.2008 varðandi ársfund Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 17. október 2008.

Framlagt.

17. 0809030 - Bréf Strætó bs., dags. 17.09.2008 varðandi nemakort í strætó á höfuðborgarsvæðinu.

Framlagt.

18. 0809029 - Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 12.09.2008 varðandi vefaðgang að fundargerðum stjórnar sambandsins og gögn sem lögð eru fram á fundum hennar.

Framlagt.

 

Erindi til afgreiðslu/umsagnir.

 

19. 0810032 - Tölvupóstur Kristjáns Hallvarðssonar, dags. 08.10.2008 varðandi Móholt 14 og 16.

Framlagt og samþykkt að veita Kristjáni Hallvarðssyni 6 mánaða framkvæmdafrest.

20. 0810034 - Erindi frá Héraðsnefnd Snæfellinga v/Byggðasafns-fjármál.

Samþykkt að veita Héraðsnefnd Snæfellinga auka fjárframlag vegna rekstrarvanda.

21. 0810029 - Erindi frá Héraðsnefnd Snæfellinga v/Byggðasafns-breytingar á rekstri.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið.

22. 0810027 - Tilnefning þriggja fulltrúa í nefnd v/eldfjallasafns.

Bæjarráð tilnefnir Gretar D. Pálsson, Erlu Friðriksdóttur og Berglindi Axelsdóttur  í nefnd v/eldfjallasafns.

23. 0810024 - Umsóknir um starf forstöðumanns æskulýðsmiðstöðvar.

Ein umsókn barst frá Sigurði Má Eggertssyni og Gísli Sveini Gretarssyni sækja sameiginlega um starf forstöðumanns æskulýðsmiðstöðvar. Samþykkt að bæjarstjóri gangi til samninga við umsækjendur.

24. 0810019 - Sjóvörn við Ægisgötu í Stykkishólmi.

Samþykkt að Stykkishólmsbær greiði 1/8 af kostnaði við sjóvörn við Ægisgötu í Stykkishólmi.

25. 0810023 - Bréf Sýslumanns Snæfellinga varðandi umsögn um nýtt leyfi veitingahússins Fimm fiska, dags. 09.10.2008.

Bæjarráð hefur ekki athugasemdir varðandi veitingu nýs leyfis til reksturs veitingahússins Fimm fiska í Stykkishólmi.

26. 0810020 - Bréf Menntamálráðuneytis, dags. 03.10.2008 varðandi tilnefningu í skólanefnd Fjölbrautaskóla Snæfellinga.

Bæjarstjóra falið að tilnefna í skólanefnd Fjölbrautaskóla Snæfellinga í samráði við aðra bæjarstjóra á Snæfellsnesi.

27. 0810007 - Bréf Grundarfjarðarbæjar, dags. 01.10.2008 varðandi sameiginlega almannavarnanefnd á Snæfellsnesi.

Bæjarráð telur ekki þörf á breytingu á núverandi skipan  stjórnar almannavarna á Snæfellsnesi.

28. 0810005 - Drög að verndaráætlun Breiðafjarðar 2008-2018.

Erindinu vísað til bæjarstjórnar.

29. 0809034 - Bréf Brunamálastofnunar, dags. 25.09.2008 varðandi brunavarnaáætlun Slökkviliðs Stykkishólms.

Samþykkt að bæjarstjóri og slökkviliðsstjóri vinni að gerð brunavarnaáætlun fyrir Slökkvilið Stykkishólms og nágreni.

30. 0809027 - Bréf dóms- og kirkjumálaráðuneytis, dags. 09.09.2008 varðandi ný lög um almannavarnir.

Bæjarráð telur ekki þörf á breytingu á núverandi skipan  stjórnar almannavarna á Snæfellsnesi.

31. 0809022 - Endurskoðun á leigu íbúða fyrir aldraðra – frá bæjarráðsfundi nr. 441.

 

Tillaga vegna húsaleigu íbúða fyrir aldraða við Skólastíg 14-16.

Frá bæjarráðsfundi nr. 441.

Undirrituð leggur til að á næstu fimm árum verði húsaleiga hækkuð um 1,75% umfram vísitölu á þriggja mánaða fresti. Heildarhækkun umfram     vísitölu að fimm árum liðnum verður því 35%.

 

Erla Friðriksdóttir,

bæjarstjóri

 

Samþykkt samhljóða.

 

Samningar/tilboð.

 

32. 0810006 - Opnun tilboða í þjónustuhús á tjaldstæði

 

Eftirfarandi tilboð bárust:

                                                m/vsk.

Sumarbústaðir ehf.               36.574.156 kr.

Skipavík ehf.                        27.931.250 kr.

Skipavík ehf. frávikstilboð      25.200.000 kr.

 

Kostnaðaráætlun fyrir verkið 27.197.400 kr. m/vsk.

 

Samþykkt að taka frávikstilboði Skipavíkur ehf. Davíð situr hjá vegna tengsla.

 

Fjármál/annað.

 

33. 0810026 - Tillaga Erlu Friðriksdóttur, bæjarstjóra, að álagningar reglum fyrir árið 2009.

Bæjarstjóri lagði fram eftirfarandi tillögu:

 

Tillaga um að útsvar fyrir árið 2009 verði óbreytt miðað við fyrra ár þ.e. 13.03%.

 

Tillaga að álagningu fasteignagjalda árið 2009.

 

Fasteignaskattur A-flokkur                             0,43%

Fasteignaskattur B-flokkur                             1,32%

Fasteignaskattur C-flokkur                               1,65% 

 

Lóðaleiga íbúðarhúsnæðis                              2,00%

Lóðarleiga atvinnuhúsnæðis                           2,50%

Lóðarleiga ræktunarland                                 6,00%

 

Holræsagjald íbúðarhúsnæði                           0,22%

Holræsagjald atvinnuhúsnæði                         0,22%

 

Sorphirðu- og sorpeyðingargjöld pr. ílát/tunnu    31.000 kr.

 

Staðgreiðsluafsláttur 3% til þeirra sem greiða fyrir 1. mars 2009 öll fasteignagjöld og eru skuldlausir við bæjarsjóð og fyrirtæki bæjarins.

 

Sorphirðu og/eða sorpeyðingagjöld af fyrirtækjum verði innheimt skv. sérstakri gjaldskrá.

 

Elli- og örorkulífeyrisþegar:

Afsláttur á fasteignaskatti til örorku- og ellilífeyrisþega er tekjutengdur og er hámarksafsláttur kr. 54.500.-  

 

Afsláttur vegna einstaklinga:

            Tekjumörk:                  Afsláttur:

            1.770.000.-                  100%              

            1.984.000.-                  75%    

            2.180.000.-                  50%                

            2.393.000.-                  25%                

            2.595.000.-                  0%                  

 

Afsláttur vegna hjóna:

            Tekjumörk:                  Afsláttur:

            3.144.000.-                  100%              

            3.352.000.-                  75%                

            3.551.000.-                  50%                

            3.762.000.-                  25%                

            3.955.000.-                  0%      

 

           

Gjalddagar fasteignagjalda verða 5 talsins á tveggja mánaða fresti þ.e. febrúar, apríl, júní, ágúst, október, fyrst 1. febrúar 2009.

 

Tillaga bæjarstjóra samþykkt.

 

34. 0810030 - Níu mánaða bráðabirgðauppgjör Stykkishólmsbæjar.

Þór Örn gerði grein fyrir níu mánaða bráðabirgðauppgjör Stykkishólmsbæjar.

35. 0810031 - Forsendur fjárhagsáætlunar 2009.

Forsendur fjárhagsáætlunar 2009 samþykktar samhljóða.

36. 0810028 - Fjárhagsaðstoð-trúnaðarmál.

Samþykkt.

37. 0810033 - 70 ára afmæli Ungmennafélagsins Snæfells.

Bæjarráð leggur til að í tilefni 70 ára afmæli Snæfells þann 23. október 2008

verði félaginu færðar 500.000 kr. að gjöf frá Stykkishólmsbæ.

38. Málefni Dvalarheimilis Stykkishólms.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála á Dvalarheimilinu.

39. Fyrirspurn frá Davíð  varðandi Onesystem kerfið vefgátt.

Þór skoðar þetta og gerir grein fyrir því á næsta fundi.

40. Fyrirspurn frá´Davíð varðandi aðkomu Orkuveitu Reykjavíkur að íþrótta og menningarmálum.

Bæjarstjóri kannar málið.

 

 

Fundargerðin upplesin og samþykkt.

Fundi slitið kl. 18:53

Þór Örn Jónsson



Til baka
Á næstunni
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré