Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
Bæjarráð, fundur nr. 404

Dags. 2.3.2006

Bæjarráð Stykkishólms hélt fund fimmtudaginn 2.mars 2006 kl. 17:00 í Ráðhúsinu.

 

Mætt voru: Elísabet L. Björgvinsdóttir, formaður

                 Rúnar Gíslason,                   

                 Davíð Sveinsson,

                 Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri

                 Þór Örn Jónsson, bæjarritari

 

Formaður setti fund og fól síðan bæjarstjóra fundarstjórnun.

 

1. Fundargerðir nefnda.

1.1. Fræðslunefnd, dags. 18.1.2006.

       Fundargerð framlögð og samþykkt.            

 

1.2. Skipulags- og byggingarnefnd, dags. 14.2.2006.

       Fundargerð framlögð liður 1 samþykkt að Stykkishólmsbær

       sjái um gatnagerð á svæðinu, liðir 2, 3, 4, 7, 8, 9, 10 og 11

       samþykktir og fundargerð samþykkt.

 

1.3. Safna- og menningarmálanefnd, dags. 7.1. og 1.3.2006.

       Fundargerðir framlagðar og samþykktar.

 

2. Aðrar fundargerðir.

2.1. 65. fundargerð Breiðafjarðarnefndar, dags. 13.1.2006

      Fundargerð framlögð.

 

2.2. 56. fundur félagsmálanefndar Snæfellinga,

      dags. 9.2.2006.

      Fundargerð framlögð.

 

2.3.  46. fundur stjórnar SSV, dags. 27.1.2006.

       Fundargerð framlögð.

 

3. Uppsagnarbréf.

3.1. Bréf Sigurlínu Sigurbjörnsdóttur, dags. 26.2.2006.

      Bréf framlagt.

 

3.2. Bréf Birnu Pétursdóttur, dags. 27.2.2006.

      Bréf framlagt.

 

3.3. Bréf Rafns J. Jóhannssonar, dags. 27.2.2006.

      Bréf framlagt.

 

4. Bréf Ægis Jóhannssonar, dags. 23.2.2006, vegna

    brotthvarfs úr safna- og menningar­málanefnd.

    Bréf framlagt.

 

5. Bréf Sigrúnar Þórsteinsdóttur leikskólastjóra,

    dags. 27.2.2006, varðandi sérkennslu og stöðu

    sérkennslustjóra í leikskólanum í Stykkishólmi.

    Samþykkt að taka upp stöðu sérkennslustjóra

    við leikskólann í Stykkishólmi frá 1. mars 2006.

 

6. Reglur Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga:

6.1. Viðmiðunarreglur fyrir heimaþjónustu við

       fjölburafjölskyldur.

       Framlagt og samþykkt.

 

6.2. Reglur um heimaþjónustu á Snæfellsnesi.

       Framlagt og samþykkt.

 

6.3. Reglur um liðveislu.

      Framlagt og samþykkt.

 

7.   Drög að gjaldskrá og reglum fyrir geymslusvæði

      Stykkishólmsbæjar.

      Reglur og gjaldskrá fyrir geymslusvæði

      Stykkishólmsbæjar samþykktar.

 

8. Endurskoðun á samþykkt um forkaupsrétt

    Stykkishólmsbæjar að fasteignum innan sveitar­félagsins.

    Endurskoðun um forkaupsrétt Stykkishólmsbæjar að

    fasteignum innan sveitar­félagsins samþykkt.

 

9. Bréf Sóknarnefndar Stykkishólmskirkju,

    dags. 9.2.2006, varðandi fasteignagjöld 2006.

    Samþykkt að veita Sóknarnefnd Stykkishólmskirkju

    styrk að upphæð kr. 105.880 vegna fasteignagjalda.

    Sóknarnefnd er bent á Orkuveitu 

    Reykjavíkur varðandi niðurfellingu á vatnsgjaldi.

    10.Bréf Braga Jósepssonar, dags. 9.2.2006,

    varðandi styrk vegna ritunar á íbúasögu Stykkis­hólms.

    Samþykkt að kaupa bækur af Braga fyrir kr. 200.000.

 

11.Samningur við Helgafellssveit um rekstur skólastofnana.

    Samþykkt að óska eftir endurskoðun á samningi við

    Helgafellssveit um rekstur skólastofnana og verði þeirri

    endurskoðun lokið á þessu ári.

 

12.Tilnefning í stýrihóp um stækkun grunnskóla og byggingu 

     tónlistarskóla.

     Samþykkt að tilnefna Elínu Bergmann Kristinsdóttur.

 

13. Umsókn um lóðir við Tjarnahólma 3, 4 og 6 frá

      Skipavík hf. Umsókn hafnað þar sem þessar lóðir

      eru ekki til úthlutunar, Davíð sat hjá.

 

14. Ræktunarland við Borg.

      Samþykkt að fá mat á ræktunarlandi við Borg.

 

15. Fyrirspurn frá Rúnari Gíslasyni varðandi Veðursafn.

      Fyrirspurn vísað til næsta bæjarstjórnarfundar.

 

16. Umsókn um að gerast aðili að Hansa-verslunarborgum.

       Samþykkt að sækja um aðild.

 

 

Fundargerðin upplesin og samþykkt.

Fundi slitið kl.19:20

Þór Örn Jónsson, bæjarritari

 



Til baka
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré