Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
Bæjarráð, fundur nr. 405

Dags. 6.4.2006

Bæjarráð Stykkishólms hélt fund fimmtudaginn 6. apríl 2006 kl. 17:00 í Ráðhúsinu.

 

Mætt voru:  Elísabet L. Björgvinsdóttir, formaður

                  Rúnar Gíslason,                   

                  Davíð Sveinsson,

                  Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri

                  Þór Örn Jónsson, bæjarritari

 

Formaður setti fund og fól síðan bæjarstjóra fundarstjórnun.

 

1. Fundargerðir nefnda.

1.1. Fræðslunefnd, dags. 6.3. og 3.4.2006.

Fundargerðir framlagðar og samþykktar.

 

1.2. Hafnarnefnd, dags. 28.3.2006.

Fundargerð framlögð og samþykkt. Samþykkt að setja

á stofn starfshóp sem móta á framtíðarsýn Stykkishólmshafnar.  

Tilnefningu vísað til bæjarstjórnar.

 

1.3. Húsnæðisnefnd, dags. 6.3.2006.

Fundargerð framlögð og samþykkt.

 

1.4. Safna- og menningarmálanefnd, dags. 3.4.2006.

Fundargerð framlögð og samþykkt.

 

1.5. Skipulags- og byggingarnefnd, dags. 14.3.2006.

Fundargerð framlögð liðir 3,4,6,7, og 8 samþykktir og

fundargerð samþykkt.

 

1.6. Skólanefnd Tónlistarskóla Stykkishólms, dags. 3.4.2006.

Fundargerð framlögð og samþykkt.

 

1.7. Stöðufundur um málefni ungs fólks, dags. 7.3.2006.

Fundargerð framlögð.

 

2. Aðrar fundargerðir.

2.1. 66. fundargerð Breiðafjarðarnefndar, dags. 10.2.2006       Fundargerð framlögð.

 

3. Bréf frá Golfklúbbnum Mostra, dags. 30.3.2006 varðandi 

uppbyggingu Víkurvallar og skipulag Víkursvæðisins og golfvallar.

Samþykkt að veita Golfklúbbnum Mostra framkvæmdaleyfi, en Golfklúbburinn verður að aðlaga sig að því deiliskipulagi sem verið er að vinna. Bráðabirgðaleyfi fyrir 5. flöt er veitt með því skilyrði að flötin verði færð á kosnað klúbbsins, þegar vegur verður lagður.

 

4.  Bréf undirbúningshóps vegna stofnunar rannsóknarseturs við Breiðafjörð, dags. 23.3.2006, þar sem leitað er eftir stofnframlagi frá Stykkishólmsbæ.

Náttúrustofa Vesturlands hefur um árabil verið rekin í Stykkishólmi með styrk frá Stykkishólmsbæ. Ítrekað hefur verið leitað eftir þátttöku annara sveitarfélaga á Vesturlandi, en þau ekki séð sér hag í því. Bæjarráð Stykkishólmsbæjar fagnar öllu samstarfi sem komið verði á milli Náttúrustofu Vesturlands, háskólaseturs Snæfellsness og Rannsóknarseturs við Breiðafjörð í Snæfellsbæ.

 

5. Bréf Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga, dags. 13.3.2006 vegna gjaldskrár heimilishjálpar.

Bréf framlagt. Samþykkt að vera með óbreytta gjaldskrá.

 

6. Bréf frá Umhverfisráðuneytinu, dags. 16.3.2006, vegna gildistöku laga um varnir gegn mengun hafs og stranda.

Framlagt.

 

7. Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 22.3.2006, um veitt námsleyfi grunnskólakennara.

Framlagt, þar kemur fram að Gunnar Gunnarsson hefur fengið námsleyfi næsta skólaár.

 

8. Bréf Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, dags. 22.3.2006, vegna veitingar starfsleyfis fyrir kræklingarækt.

Bréf framlagt.

 

9. Frsreikningur Hafnasambands sveitarfélaga.

Framlagt.

 

10.Ársreikningur og aðalfundarboð Jeratúns ehf.

Framlagt. Samþykkt að Erla Friðriksdóttir bæjarstjóri fari með atkvæði Stykkishólmsbæjar á aðalfundi Jeratúns ehf.

 

11.Umsókn um niðurfellingu á fasteignagjöldum vegna örorku, dags. 3.3.2006.  Umsókn fellur ekki undir reglur Stykkishólmsbæjar um niðurfellingar fasteignaskatts.

 

12.Drög að samningi við Eflingu vegna yfirtöku á rekstri tjaldsvæðis og upplýsingamiðstöðvar og flutnings starfs framkvæmdastjóra á bæjarskrifstofur.

Bæjarstjóra falið að ganga frá samningi miðað við drögin.

 

13.Drög að samningi við Mostra vegna reksturs tjaldsvæðis.

Bæjarstjóra falið að ganga frá samningi miðað við drögin.

 

14.Vinnuskólinn-Tillaga að hækkun tímalauna.

Samþykkt að hækka laun um 3% í unglingavinnu.

 

15.Stefnumörkun í málefnum aldraðra – Skýrsla nefndar á vegum Stykkishólmsbæjar.

Skýrsla framlögð og nefndarmönnum þökkuð vandaða og vel unna skýrslu.

 

16.Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 10.2.2006, vegna 11. norrænu sveitarstjórnarráðstefnunnar 14.-16. maí nk. í Svíþjóð.

Framlagt.

 

17.Bréf Umhverfisstofnunar, dags. 29.3.2006, varðandi varnir gegn mengun sjávar.

Framlagt.

 

18.Bréf Umhverfisstofnunar, dags. 28.2.2006, varðandi upplýsingar er varða eftirlit á leiksvæðum.

Framlagt.

 

19.Bréf Landgræðslu ríkisins, dags. 2.3.2006, varðandi verkefnið Bændur græða landið.

Framlagt.

 

20.Bréf Vegagerðar ríkisins, dags. 28.3.2006, varðandi Stykkishólmsveg.

Bréf framlagt, þar kemur fram að fyrirhugað er að endurbyggja gatnamót Snæfellsnesvegar og Stykkishólmsvegar við Gríshólsá í sumar. Stefnt er að því samkvæmt viðhalsáætlun að Stykkishólmsvegur verði styrktur á árinu 2007-2008. Stefnt er að því að setja vegrið í Vogsbotni.

 

21.Bréf ÍSÍ, dags. 27.3.2006, varðandi fyrirtækjakeppnina “Hjólað í vinnuna”.

Framlagt.

 

22.Bréf Umhverfisráðuneytisins, dags. 22.3.2006, varðandi Dag umhverfisins 25. apríl nk.

Framlagt.

 

23.Bréf Samgöngunefndar Alþingis, dags. 27.3.2006, varðandi umsögn á þingsályktunar­tillögu um uppbyggingu héraðsvega.

Framlagt.

 

24.Bréf, dags. 4.4.2006, vegna beiðni um styrk til náms- og kynnisferðar Grunnskólans og Tónlistarskólans.

Tekið er jákvætt í erindið og samþykkt að fá nánari lýsingu á ferðatilhögun og hve margir fari og hvort sótt er um aðra styrki.

 

25.Erindi frá Berglín ehf. varðandi sumarhúsaland og efnisvinnslu.

Erindum vísað til skipulags- og bygginganefndar.

 

26.Kaup á nýjum mörkum á íþróttavölinn.

Samþykkt að kaupa ný mörk á íþróttavöllinn.

 

27.  Erindi frá Hesteigendafélagi Stykkishólms (H.E.F.S.T.) varðandi styrk til byggingu reiðskemmu.

 

“Eins og erindið ber með sér er undirbúningur H.E.F.S.T. alls ekki nægilega langt á veg kominn til að bæjarráð geti tekið afstöðu til þess. Því leggur undirritaður til að haldin verði sérstakur bæjarráðsfundur þar sem erindið verði til lykta leitt. Auk boðaðrar kostnaðar- og rekstraráætlunar er nauðsynlegt að bæjarstjórn fái upplýsingar um hver verði rekstraraðili og hver þinglýstur eigandi . Verði H.E.F.S.T. þinglýstur eigandi þarf samþykki félagsmanna að liggja fyrir.”

 

Rúnar Gíslason

 

Tillaga Rúnars samþykkt.

 

28. Erindi frá Nesbrauð ehf. varðandi lóðarbreytingu í kringum bakarið.

Samþykkt að minnka lóð Nesbrauð ehf., en í staðin sér Stykkishólmsbær um að malbika plan og bílastæði fyrir framan bakarið um leið og framkvæmdir verða á planinu við Björgunarsveitarhús.

 

29. Aðalfundur Heilbrigðiseftirlits Vesurlands verður haldinn 26. apríl 2006 á utanverðu Snæfellsnesi.

 

30.Kostnaðaráætlun í flísalögn í búningsklefum sundlaugar og innilaug.

Bæjarstjóra falið að ganga frá samningum.

 

31. Styrkumsókn vegna kayakmóts í Stykkishólmi um Hvítasunnuna.

Samþykkt að veita 50.000 kr. styrk.

 

 

Fundargerðin upplesin og samþykkt.

Fundi slitið kl.19:52

Þór Örn Jónsson, bæjarritari

 



Til baka
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré